Stefna Obama í menningarmálum

obamachangeSigur Baracks Obama kann að marka nýja tíma fyrir listir, eins og svo margt annað í Bandaríkjunum. En hann er fyrsti forsetaframbjóðandi þar í landi til að gefa listum sérstakan gaum í stefnuskrá sinni.

Obama mótaði menningarstefnu (arts plank) áður en hann var valinn forsetaefni demókrata og til þess leitaði hann aðstoðar hjá menningarvitum á borð við Michael Chapon (rithöfund), Harold Prince (leikstjóra) og Agnes Grund (hjá MOMA).

Á stefnuskránni boðar Obama aukinn stuðning við listmenntun, aukin framlög til NEA (National Endowment of the arts) sem hafa verið skorin niður hjá Bush ríkisstjórninni og breytingu á skattalögum.

Afstaða Johns McCaines til menningarmála var hinsvegar sú að skera niður framlög. Það var reyndar ekki á stefnuskrá hans en hann hefur verið fylgjandi þeirri aðgerð sem þingmaður. M.a. í niðurskurði til NEA.

HÉR má lesa menningarstefnu Obama og Bidens í heild sinni.


mbl.is Obama kjörinn forseti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Chicago hefur aldrei verið fallegri  .. jákvæð orka, gleði og von....  

Anna Jóelsdóttir (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 17:34

2 Smámynd: Kristbergur O Pétursson

Obama lofar góðu en kosning hans markar engin straumhvörf í menningarmálum innanlands í USA. Forsaga, stefnuskrá og loforð..heard it all before.

Kristbergur O Pétursson, 5.11.2008 kl. 21:57

3 identicon

leyfum honum að spreyta sig fyrst..nógur tími til að dæma...

.ég hef heyrt hann gagnrýna harðlega hvernig útreið myndlistin hefur fengið í skólum sl 8 ár..hann beitti þar mjög sterkum rökum um uppeldislegt gildi hennar sem sannfærði mig um  að hann trúi í alvöru að listin skipti mjög miklu máli í uppeldi og lífi manna.. 

Anna Jóelsdóttir (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 22:58

4 Smámynd: Kristbergur O Pétursson

Ég vona það besta en býst ekki við neinu fyrir hönd USA. Kosningaloforð eru kosningaloforð.

Kristbergur O Pétursson, 5.11.2008 kl. 23:54

5 Smámynd: Ransu

Það að hafa markvissar aðgerðir sem snúa að listum á stefnuskránni sinni eru útaf fyrir tímamót þar sem að Obama er fyrsti forsetaframbjóðandi í sögu BNA sem mótar sér og boðar stefnu í þeim málum.  Þannig að "Nobody´s heard it before", Kristbergur. 

Ransu, 6.11.2008 kl. 00:08

6 Smámynd: Kristbergur O Pétursson

Vonandi reynist það rétt. Markvissar fyrirhugaðar aðgerðir sem snúa að óteljandi málefnum innalands og utan. Obama þarf að forgangsraða. Það fyrsta sem deyr á undan miskunn drottins í harðærum er... Menningarmálin? Mogginn??? verður menning minning?

Kristbergur O Pétursson, 6.11.2008 kl. 03:26

7 Smámynd: Ransu

Grafarskrift Íslands er aðvitað "Stórasta land í heimi". 

Það verður hin ritaða minning um ísland því þá er hápunkturinn fyrir fallið, sem undir það síðasta fékk okkur íslenska lýðinn til að svífa á bleiku blekkingarskýi.  .

Menningin mun skipta meira máli í raunverunni en hún gerði á bleika skýinu.

Hins vegar erum við enn að átta okkur á að við séum dottin af skýinu og erum að leita fyrir okkur. 

Þetta á við um flest vesturlönd og er kosning Obama er vonandi fordæmi fyrir breytta tíma. CHANGE, eins og plakatið segir.

Það á hlýtur líka að eiga við um listir og menningu.

Ransu, 6.11.2008 kl. 09:37

8 identicon

í fallinu gætu frábærir hlutir gerst  EF menn fara ekki beint í að leita að nýju bleiku blekkingarskýi..

Anna Jóelsdóttir (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband