Daniel Birnbaum sýningarstjóri á Feneyjartvíæringnum 2009.

birnbaumdanielVar rétt í þessu að fá þær fréttir að íslandsvinurinn Daniel Birnbaum hafi verið valinn sýningarstjóri yfir Arsenale  á næsta Feneyjartvíæringi.

Ég mundi segja þetta ágætis fréttir. Birnbaum er eðal "kjúrator"og gagnrýnandi, Sænskur gutti, fæddur 1963. Hann er formaður IASPIS (International Artist´s Studio Program in Sweden) en starfar mikið á meginlandinu og í Bandaríkjunum. 

Arsenale er annar helmingur tvíæringsins, og sá sem hefur verið í aukinni sókn á móti Giardini, þar sem löndin hafa sína fulltrúa.  Síðast var það Robert Storr sem sá um Arsenale og hlaut misjafna dóma fyrir sína vinnu.

Máski fáum við einhverja Norræna sveiflu á næsta biennal.  Allavega Ólaf Elíasson. Spurning hvort íslenskir  listamenn verði duglegir að "teika" Daniel næst þegar hann heimsækir okkur.

Annars er óvitað um þema Birnbaums annað en að hann sagði; "I will steer clear of the hierarchies dictated by commercial interests and fashion.''


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Hallsson

Takk fyrir þessar ljómandi fréttir Ransu. Þjóðverjar eru eiginlega búnir að eigna sér Daniel Birnbaum enda er hann búsettur þar og rektor Städelschule í Frankfurt. Hann var einn af aðstoðarsýningarstjórum á 50. Feneyjatvíæringnum. Hann er gott val. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 8.4.2008 kl. 21:47

2 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

flott að heyra.

teika

Blessi þig

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 9.4.2008 kl. 17:09

3 Smámynd: Kristbergur O Pétursson

Teika?

Steinar Sigurjónsson notaði orðatiltækið: 'Að skríða uppí skeggið á' e.h.

Siggi Gúmm var ekkert að skafa utan af því þegar ég eitt sinn ræddi við hann um teiktengd mál: "Þú þarft að sofa hjá svo mörgum hommum."

Maður horfir bara á bílalestina bruna hjá og spyr sig: Hvort er það fremsti limminn eða sá aftasti sem á að teika?

Kristbergur O Pétursson, 10.4.2008 kl. 08:42

4 Smámynd: Ransu

Ætli að fremsti limminn sé ekki málið, þ.e. ef maður nær taki á honum, en þar er væntanlega fjöldinn allur af "teikurum" fyrir.

Ransu, 10.4.2008 kl. 09:24

5 Smámynd: Kristbergur O Pétursson

Nú ætla ég að grínast dálítið á eigin kostnað. Það er í gátuformi. Hugsum okkur ótilgreindan fjölda af límósínum með samtals ótilgreindum sætafjölda. Þær eru krúsandi í röð fram og til baka í skoðunarferð um íslenska listaheiminn. Í fremstu limmunni situr heimsfrægur kjúrator.

Ef Ólafur Elíasson teikar (hangir aftaní) fremstu limmuna, og enginn annar að teika í röðinni, hvað eru þá mörg sæti laus í öllum limmunum?

Ef Kristbergur teikar öftustu limmuna, og enginn annar að teika í röðinni, hvað eru þá mörg sæti laus í þeim öllum?

Kristbergur O Pétursson, 10.4.2008 kl. 12:31

6 Smámynd: Ransu

Það hljóta að vera öll sætin laus nema sæti kjúratorsins úr því að allir eru að teika.

Ransu, 10.4.2008 kl. 15:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband