Flott að fitna

taylor

Það hefur jafnan þótt dyggð í Hollywood að fita sig fyrir hlutverk og hefur sá gjörningur oft skilað einum Óskar á stofuborðið. 

Elisabeth Taylor bætti á sig 15 kg fyrir Who´s afraid of Virginia Woolf og hlaut Óskar, Charlize Theron bætti á sig fyrir verðlaunahlutverkið í Monster og Robert de Niro bætti á sig 30 kg. fyrir Raging Bull og fékk Óskarinn (Hann mætti síðan skorinn og vöðvastæltur í Cape Fear skömmu síðar).

Matt Damon er fantagóður leikari.  Var sérstaklega góður í The Talented Mr. Ripley, en líka fínn í Good Will Hunting og The Departed.  

Með 15 kg. í bónus og þar að auki í Sodenbergh mynd eru honum allir vegir færir.....


mbl.is Búttaður Damon óttast titilsmissi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband