13.4.2008 | 11:51
Yfirfullt á opnun Riceboy Sleeps í Lundúnum
Ein aðalfrétt Artinfo í morgun er að annar helmingur Riceboy sleeps, sem opnaði í lítt þekktu Agency galleríi í Lundúnum í gær, sé Jónsi í Sigur Rós.
Greinarhöfundur, Oliver Basciano, dáist að því að markaðssetning gallerísins hafi ekki gert neitt úr þessum hluta tvíeykisins, en einhverjir blaðamenn rákust á þetta á aðdáendasíðu Sigur Rósar.
Fyrir vikið mættu blaðamenn og sjónvarpstökufólk á opnun sem var yfirfull af fólki. En sennilega hefði þetta ekki þótt jafn fréttnæmt ef PR gallerísins hefði miðast út frá nærveru Jónsa.
Það verður forvitnilegt að sjá hvort að breskir gagnrýnendur taki á sýningunni. Og máski einhverjir sigrar í vændum?
Mynd: Riceboy sleeps, Rain down my Favorite songs, 2007
Hér er svo hlekkur á heimasíðu The Agency gallery http://www.theagencygallery.co.uk/index.html
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:38 | Facebook
Athugasemdir
Mikið ofboðslega er maður orðinn þreyttur á þessari " heimsfrægð " sem þú ágætur Bokki skrifar á MBL. Þessi síðasta "frétt" þín um ... Ein aðalfrétt Artinfo í morgun ... segir í raun minna en ekki neitt - gjörsamlega tómt vatnsglas . Sem verktaki hjá MBL væri skemmtilegt að sjá sjálfstæða umfjöllun sem kemur beint frá einhverju sem skiptir máli. Ekki einhverri " heimsfrægð " og fagurgali.
Það er margt að gerast í Íslenskri menningu. Please - make money and dont be read AMSTERDAM !
grl
Guðmundur R Lúðvíksson (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 00:45
Ahahahaha. Kíkti á umrædda vefsíðu og sá engar " heimsfréttir ". Ertu bara að JOKA með okkur aulana ?
GRL
Ps. vill fá svar frá heilögum. Ætlaði að senda mynd af "aðalréttinni" en ekki gefin kostur.
GRL (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 00:57
Sæll Guðmundur. Ég mundi gjarnan vilja að þú fengir útrás fyrir gremju þinni annarsstaðar. Og látir þessi barnalegu uppnefni eiga sig.
Þér er frjálst að sleppa að lesa bloggið mitt ef það pirrar þig eitthvað. Þetta er ekki opinber stofnun sem sinnir almennum fréttum, bara ég að blogga um hitt og þetta sem viðkemur menningu.
Hér er linkur á fréttina ef það hjálpar þér til að líða betur.
http://www.artinfo.com/news/story/27318/sigur-rs-frontman-draws-crowd-to-sleepy-london-gallery/
Ransu, 14.4.2008 kl. 08:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.