16.5.2008 | 11:51
Tanja Dabo
Tanja Daboer fædd í Zagreb árið 1970. Hún er eina konan sem Radmila Iva jankovic hefur valið í þennan fimm manna hóp listamanna frá Króatíu.
Tanja er þó "andlit" sýningarinnar. En verk hennar Welcome er einnig yfirheiti sýningarinnar í orkuveitunni, og kyrrmynd úr myndskeiðinu prýðir plakat, boðsmiða og er víða í kynningu á listahátíðinni.
Tanja Dabo hefur hlotið viðurkenningar fyrir verk sín á alþjóðlegum sýningum í Króatíu, Þýskalandi, Bandaríkjunum, Japan og Suður Kóreu.
Nýlegar sýningar eru í Galerie Maerz í Linz í Austurríki, HDLU í Zagreb og White Cube í Berlín.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 16:19 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.