13.8.2008 | 14:13
Dularfullur listamaður
Margur kynni að halda að þessi mynd sem ég birti hér á bloggsíðunni sé eftir Andy Warhol, en svo er ekki.
Hún ku vera eftir Pietro nokkurn Psaier. En hann ku hafa verið náinn samstarfsmaður Andys allt frá árinu 1960 og mótað með honum þá list sem Warhol er þekktur fyrir og unnið að henni með honum í verksmiðjunni (heiti yfir vinnustofu warhols), eða svo segir allavega John Nicholssons, listaverkasali, sem hefur verið að selja verk eftir Psaier og komið um 200 þeirra í umferð á forsendum samvinnu hans og Warhols.
Samkvæmt Nicholsons þá kaus Psaier að vera í skugga Warhols en nú er hann kominn út úr skápnum. Þó ekki hann sjálfur því Psaier mun hafa látist í tsunami flóðinu árið 2004 og lík hans aldrei fundist.
Það er sannarlega gaman að óþekktur listamaður skjóti upp kollinum sem einn helsti áhrifavaldur á samtímalist. En gallinn á þessum dularfulla listamanni er þó sá að enginn af vinum Warhols eða þeim sem héngu með honum á verksmiðjunni kannast við að hafa nokkurn tíman séð eða heyrt af Pietro Psaier.
HÉR má lesa frétt um málið, HÉR er skemmtilegt innlegg og HÉR er hlekkur á heimasíðu Nicholsons listaverkasala með upplýsingum um listamanninn Pietro Psaier.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:25 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.