14.8.2008 | 09:38
Kúkur á flugi
Þessi myndarlegi skúlptúr nefnist Complex shit og var á sýningu í Sviss allt þar til í gær að hann losnaði frá festingum sínum og tókst á flug, en verkið er uppblásið eins og blaðra á stærð við hús.
Á svifi yfir Sviss olli skúlptúrinn einhverjum skemmdum á eignum og óvíst hvort hann fari aftur til síns staðar, en hann er nú lentur og það einhverjum 200 skrefum frá leiksskóla. Sennilega fínasta skemmtun fyrir börnin. Frétt HÉR
Höfundur Complex shit er Bandaríkjamaðurinn Paul McCarthy. Hann sýndi hér fyrir nokkrum árum ásamt Jason heitnum Rhoades í Kling & Bang galleríi.
Sýningin hét Sheep plug og er ein sú eftirminnilegasta sem hefur komið hingað til lands á síðustu árum. McCarthy er einnig höfundur, ásamt Rhoades, útilistaverksins Macy´s á Eiðum. En þar, rétt utan við byggðina stendur yfirgefinn Macy´s verslun og birtist er maður gengur yfir hæðina, ekki ósvipað og þegar Frelsisstyttan birtist Charlton Heston í ógleymanlegu atriði Apaplánetunnar.
McCarthy er magnaður og róttækur listamaður sem er farinn að nálgast eftirlaunaaldurinn. Það má sjá slatta af gjörningum hans á YouTube. HÉR er brot úr einum sem heitir Painter.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 10:30 | Facebook
Athugasemdir
Ha ha Bráðskemmtilegt videóið painter......raunir listamannsins eða hvað?
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 14.8.2008 kl. 11:21
það er alltaf gaman að svona risaskúlptúrum. Var ekki Claes Oldenburg frumvöðull í þeim? Og mjúku skúlptúrarnir hans eru merkilegir, eins og mjúka trommusettið, það er nóg fyrir mig að sjá það í huganum og þá fer ég að hlæja. Það er ekki oft sem maður sér myndlist sem geymist í huganum á svo afgerandi hátt að maður þarf ekki ljósmynd af því til upprifjunar. Það er auðvelt að muna tónlist og ljóð og setja það á spilarann sem er staðsettur á milli eyrnanna. Ekki eins auðvelt með myndlistina, ég er allavega með betra tónminni en sjónminni. Ég man ekki hverja fertommu af mínum eigin verkum, hvað þá annarra. En fyrir nokkrum árum fékkst ég lítilsháttar við tónsmíðar á tölvu, samdi eitt lag fyrir fjórar raddir og merkilegt nokk, gat munað allar raddirnar og spilað í huganum.
Kristbergur O Pétursson, 16.8.2008 kl. 09:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.