5.12.2008 | 00:24
Kapoor er æði
Þetta verk heitir Minningog er eftir bresk-indverska listamanninn Anish Kapoor .
Þetta er splunkunýtt stykki, stór belgur úr stáli, og er til sýnis í Guggenheim í Berlín fram til febrúar, en mun síðan halda til höfuðsafnsins í Nýju Jórvík.
Kapoor hefur aldrei unnið í þetta efni áður.
Formið minnir dálítið á eldri verk listamannsins, allavega frá þessu sjónarhorni (Þ.e. þegar hann hellti þurru litardufti á form, nema að hér notar hann litbrigði riðsins).
Ég væri rosalega til í að vera í Berlín núna og skoða. Kapoor er æði.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 00:42 | Facebook
Athugasemdir
Sammála, flott verk
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 5.12.2008 kl. 22:42
Þetta er ótrúlega skemmtilegt verk og hugvekjandi. Viss eilífð í því, í þeim skilningi að maður kemst aldrei til botns í því og það rennur hálfpartinn á mann æði að stinga sér til sunds í það og svamla í því skríkjandi af einskærri gleði
Máni Ragnar Svansson, 12.12.2008 kl. 19:44
Sæll Ransú. Sammála þér um Kapoor. Man hvað mér fannst gaman að sjá hann í Túrbínusalnum í Tate um árið. Snéri mjög skemmtilega á hrikalega stærð salarins. Var alveg til í að sjá hann betur og er alltaf að bíða eftir að rekast á gott yfirlitsrit um hann. Annars, takk kærlega fyrir skemmtilegt blogg. Kíki reglulega á þig - haltu áfram!
kv Guðni Tómasson
Guðni Tómasson (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 23:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.