Svar Íslands við David Blaine

skariFyrir um áratug var mikið skrifað um töframenn í listtímaritum sem partur af samruna myndlistar og skemmtunar eða "art and entertainment" í svokallað "artentainment". Ég man t.d. eftir heilmiklu viðtali við David Copperfield í listtímaritinu  Art in America.

David Blaine er oft settur í þetta samhengi. Hann reynir á þanþol líkamans ekki ósvipað og gjörningalistamenn á borð við Viti Acconci og Ulay og Marina Abramovich voru að fást við á áttunda áratugnum. Og ekki er langt síðan ég bloggaði um nýlegan gjörning Króatíska listamannsins Slaven Tolj sem svolgraði í sig Vodka og Búrbon þar til hann endaði í súrefnisgrímu á spítala.

Þegar menn eins og Copperfield og Blaine voru til umræðu í listtímaritum skrifaði  Gunnar J. Árnason, listheimspekingur, grein í Norræna listtímaritið Nifca um íslending sem væri að vega salt á milli listar og töfrabragða. Og virkaði greinin sem nokkuð heiðarleg tilraun til að setja Ísland inn í þennan alþjóðlega straum "artentainment".

Svar Íslands við uppákomum Davids Copperfields og Davids Blaines reyndist enginn annar en Skari Skrípó.

En Skari Skrípó getur t.d. sogið smokk upp í nefið og dregið hann aftur út um munninn.


mbl.is Hélt niðri í sér andanum í rúmar 17 mínútur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband