16.8.2008 | 15:18
Nýtt listaverk finnst eftir Leonardo da Vinci
Enn finnast listaverk eftir löngu liðna listamenn.
Þessi huggulega teikning er í einkaeign Bandarísks listaverkasafnara sem keypti hana á eina og hálfa milljón króna fyrir 10 árum síðan og var höfundur þá óþekktur.
Safnarinn hefur nú látið rannsaka myndina og segja sérfræðingar að miðað við stílbrigði, tímabil, útlit o.fl. sé myndin að öllum líkindum eftir sjálfan Leonardo da Vinci.
Fáist það endanlega staðfest er víst að safnarinn þarf ekki að svelta.
HÉR er frétt um málið.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 15:20 | Facebook
Athugasemdir
Kunningi minn, sem nú er látinn, var staddur í boði í vesturbæ Rvk. uppúr 1960. Mannmargt var í veislunni enda húsið stórt og vistarverur margar. Kunningi minn þurfti að létta á sér og þvældist hann uppá efri hæð hússins, kemur þar að skuggsýnum gangi og við enda hans stóð lítið borð,sem á stóð lampi og stafaði frá honum daufri birtu. Er kunninginn kemur að lampanum verður honum starsýnt á málverk er hangir yfir lampaborðinu og sýnir myndin sólblóm í vasa. Í neðra horni, hægra megin var signerað Vincent ;)
Ásgeir Kristinn Lárusson, 16.8.2008 kl. 17:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.