8.10.2008 | 21:25
Bravó Snorri
Flott hjá Snorra Ásmundssyni, myndlistarmanni, að laumast inn á blaðamannafund og rétta Geir H. Haarde uppsagnarbréf Davíðs Oddssonar Seðlabankastjóra.
Gjörningur sem margir hafa hugsað réttmætan eftir gærkvöldið en ekki látið sér detta í hug að segja manninum bara upp sjálfir.
"Einhver varð að gera þetta" segir Snorri.
Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:12 | Facebook
Athugasemdir
Ótrúlega töff!
Ragga (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 21:28
Snorri er bara snillingur
Þorsteinn Gunnarsson, 8.10.2008 kl. 22:48
Já skyldi Snorra ekki ganga betur að safna fólki í miðbæinn en Bubba? Ég sé fyrir mér hvernig við fylkjumst í kröfugöngu með Snorra að Seðlabankanum og hvikum ekki fyrr en bankastjórarnir víkja.
Ásdís (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 10:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.