13.11.2008 | 10:10
Bjartsýni
Mér þykir menn bjartsýnir að áætla að Diana og Acaeon eftir Titian fari á 300 milljónir punda miðað við þessa frétt í Morgunblaðinu um nýjasta uppboð Sotheby´s. En þar er greint frá því að verk eftir Philip Guston, Jeff Koons ofl. hafi farið á útsöluverði.
Titian er reyndar ekki Guston og Koons, en 300 milljónir punda er slatti meira.
Í New York Times er greint ítarlegar frá þessu uppboði Sotheby´s. Málverkið Half face with collar (sjá mynd t.v.) eftir Roy Lichtenstein sat t.d. eftir og hlaut ekkert boð. Það var metið á 15. milljónir dollara.
Sama var með 2 verk Damiens Hirst sem skömmu fyrir efnahagshrunið seldi fyrir stjarnfræðilegar upphæðir. Nú sat hann eftir óuppboðinn.
Christie´s hefur svipaða sögu að segja eftir uppboð um síðustu helgi þar sem verk eftir Picasso, Kandinsky, Monet ofl. fóru á útsöluverði.
Hins vegar fór verkið Bók, pípa og gleraugu (sjá mynd t.h.) eftir Juan Gris frá árinu 1915 á 21 milljón dollara, sem er metverð fyrir listamanninn. En myndin var metin á 18,5 milljónir dollara.
HÉR er grein um Christie´s uppboðið í NYT.
Hvað varðar verk Titians Diana og Acaeon (sjá mynd t.v.)þá er 50. milljónir punda tilboð Hertogans af Sutherland til ríkisstjórnarinnar útsölutilboð miðað við matsverð. En miðað við stöðuna í dag er óvíst að verk fari nálægt matsverði.
Málverkið sýnir augnablikið þegar stríðshetjan Acaeon kemur að gyðjunni Díönu í baði sem leiddi til þess að hann var drepinn. Ein útgáfan er að hún hafi breytt honum í stegg og sigað á hann hundum.
Þá hefur málverkið tilfinningarlegt gildi fyrir Breta sem skiptir miklu máli í þessu, enda stórbrotið verk eftir algeran snilling.
Emin skorar á Brown | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 16:56 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.