3.10.2008 | 16:30
Starfslaun eða verkefnastyrkur?
Ég skrifaði Af listum pistil sem birtist í Mogganum í gær undir yfirskriftinni Starfslaun á dögum excel-skjalsins og að beiðni sem kom í athugasemdum vegna skrifa hér að neðar á blogginu ætla ég að drepa á greininni hér á bloggið.
Punkturinn með greininni var að benda á áherslubreytingar í starfslaunaumsókninni og þá á úthlutun launanna. En ég geng út frá því að þau hafi breyst í verkefnastyrk og sé tímaspursmál að þau lög taki gildi.
Ég vitna þá í upphafstexta umsóknareyðublaðsins og lið 4 og 5 á sama blaði þar sem augljóslega kemur fram að verkefnin sem eru framundan ráði úrslitum á umsóknunum og að umsækjendum beri að gera skilmerkilega greinagerð á þeim.
Ég velti þá fyrir mér hvað sé verkefni í listum. Miðast myndlistarverkefni t.d. við gerð opinberra listaverka, dvöl í gestavinnustofu eða hverskyns sýningarhald. Eru launin þá hér með frátekin fyrir þá sem eru duglegir að sanka að sér flestum tímarömmuðu verkefnunum og sem lengst fram í tímann? Eða getur rannsóknarvinna talist verkefni? Órætt tímalaust ferli sem með öðrum orðum má kalla "að sinna listsköpun".
Því spyr ég, líkt og einn ágætur kollegi minn sem vakti mig til umhugsunar, "Er hægt að setja listsköpun inn í excel-skjal?"
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
2.10.2008 | 18:48
Journey to the Centre
Ég er víst búinn að missa af eigin opnun en klukkar 18:00 ( Þ.e. í öðru tímabelti klukkan 18:00) opnaði sýningin Journey to the centre í Broadway gallery í Soho hverfi New York borgar.
Titillinn vísar annars vegar til skáldsögu Jules Vernes sem nýlega var kvikmynduð en hins vegar til sköpunarferlis sem ferðalags í sjálfu sér (sem útskýrir undirtitilinn Bioprocess).
Ásamt mér sýna: Elsa D. Gísladóttir (myndlistarkona), Helga Arnalds (myndlistar og -brúðugerðarkona), Guðrún Vera Hjartardóttir (myndlistarkona) og Anna Halldórsdóttir (tónskáld), en GuðrúnVera og Anna vinna saman að verkefni sem tengir saman skúlptúr og tónlist.
Sýningin stendur út októbermánuð.
Allir velkomnir....en ég býst við að fá myndir sendar og læt þær á bloggið handa þeim sem ekki gera sér ferð út.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.9.2008 | 00:07
Algert VIP
Fór á opnun ID Lab í Listasafni Reykjavíkur í gær.
Horfði á uppákomu Gjörningaklúbbsins.
Þær létu reisa veislutjald í Fjölnotasalnum og buðu nokkrum útvöldum inn, en lokuðu á okkur hin. Inni í tjaldinu var fólk að skemmta sér við söng og að utan sáust bara skuggarnir á tjöldunum og ómur íslenskra ættjarðarljóða.
Í ábæti gekk sú saga á milli manna að þar inni væru listamennirnir 50 í bókinni umdeildu (óútkomnu), þ.e. þessir 50 sem Halldór Björn Runólfsson og Christian Schoen hafa valið sem aðal íslenskrar samtímalistar og er ætlað til dreifingar á söfn og gallerí.
Svo var auðvitað ekki en Það var fyndin viðbót sem einn gestanna kom af stað, gjörningur í formi kjaftasögu sem blandaðist við gjörninginn í tjaldinu, svona til að gera VIPið algert.
Þetta var ansi vel heppnuð uppákoma hjá Gjörningaklúbbnum.
Spurning um að vera þátttakandi eða áhorfandi.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
21.9.2008 | 21:49
Ættarmót á Akureyri
Ég fór á afhendingu Sjónlistaverðlauna á Akureyri.
Þegar íslenskir myndlistarmenn eru saman komnir í einhverri hátíð að þá virkar það jafnan á mig eins og fjölskyldusamkoma.
Opnun í i8 eða Terpentínu er t.d. eins og afmæli, opnun í Listasafni R.víkur eða Listasafni Íslands er þá stórafmæli en Sjónlistaverðlaunin eru eins og ættarmót.
Okkur borgarbúum var tekið opnum örmum af ættingjum okkar á landsbyggðinni. Þar heiðruðum við höfðingja á föstudagskvöldinu með orðu og ærlegu fylleríi.
Á laugardeginum var rútuferð til Hjalteyrar þar sem fjölskyldan kom saman til að sjá hvað unga fólkið í ættinni væri að braska á sýningunni Grasrót.
Einn skörungur ættarinnar tók svo á móti rútunni í bakaleiðinni og bauð í mat, rétt eftir réttirnar. Og ég held að hver einasti maður sem settist í þann heimilisfaðm hafi staðið á öndinni yfir gestrisni húsfreyjunnar að Freyjulundi.
Að því búnu var furðufataball á Akureyri þar sem grasrótinni var boðið velkomin til fullorðinna tölu með ærlegu fylleríi.
Ættarmótinu lauk á sunnudeginum með kaffiboði, fyrir þá sem enn voru í bænum, á heimili Hlyns Hallssonar. Ég missti því miður af því boði.
Já, Þetta er ein stór fjölskylda
Menning og listir | Breytt 22.9.2008 kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.9.2008 | 00:31
Bragi í 60 ár
Ég fór á opnun á yfirlitssýningu á verkum Braga Ásgeirssonar á Kjarvalsstöðum. Þar var margt fólk að heiðra listamanninn. En fáir kollegar af minni kynslóð og yngri.
Mikið svakalega er tímabært að fá svona yfirlit.
Tvímælalaust skylduheimsókn á safnið, enda ferill listamanns sem spannar 60 ár sem nær yfir klassíska fagurfræði og gróteskleika, fígúrasjón og abstraktsjón
HÉR er hlekkur á heimasíðu Braga.
Myndin er sjálfsmynd listamannsins frá árinu 1951 þegar hann er við nám, í Kaupmannahöfn.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 00:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
9.9.2008 | 09:33
Lifandi manneskja seld til listaverkasafnara
Belgíski listamaðurinn Wim Delvoye hefur nú selt lifandi manneskju til listaverkasafnara. Sá seldi heitir Tim Steiner og er frá Sviss.
Það er þó ekki þannig að listaverkasafnarinn geti gert hvað sem er við manninn því að í samningi má hann hafa hann til sýnis þrisvar á ári, en það fylgdi ekki frétt atrforum.com, hversu lengi hvert sinnið.
Ástæðan fyrir kaupunum er húðflúr sem Delvoy teiknaði á bak mannsins og eftir að Steiner fellur frá mun skinnið á baki hans falla í skaut safnarans eða ættingja hans.
Delvoye hefur áður selt húðflúruð svín En þetta ku vera í fyrsta sinn sem manneskja ber listaverkið á eigin skinni, og kaupin þau fyrstu af þessum toga, eins og sagt er í frétt HÉR
Wim Delvoey vakti fyrst athygli á síðari hluta níunda áratug síðustu aldar, þá rétt rúmlega tvítugur, fyrst fyrir að mála skjaldarmerki á straubretti og síðan fyrir blátt postulínsskraut á gaskúta. Voru þessi verk hans gjarnan notuð sem táknmyndir nýrra strauma póstmódernismans.
Wim Delvoye er nú einhver þekktasti listamaður Belga (einskonar Damien Hirst þeirra í flæmingja, nema bara mikið meira í hann spunnið). Hreint út sagt frábær listamaður. HÉR er hlekkur á heimasíðu hans. Hún er sérlega skemmtileg.
Efsta myndin á síðunni er af baki Tims Steiners og má sjá undirskrift Wims undir myndinni. Verkið er frá 2008.
Myndin hægra megin fyrir miðja síðu er af Delft-gaskútum Delvoyes frá árinu 1988.
Neðsta myndin er af einu skjaldamerki listamannsins á straubretti frá 1988.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.9.2008 | 08:05
Hildur í ISCP
Árið 2006 var ég í gestavinnustofu ISCP (International Studio and Curatorial Program) í New York borg.
Þetta er frábært prógramm þar sem að listamenn frá hinum ýmsu heimsálfum eru saman komnir á einum bletti hittast og deila saman reynslu sinni. Auk þess að gagnrýnendur, galleríistar og safnstjórar koma þarna í boði stofnunarinnar. Maður fær speglun á verk sín og máski gott tenglanet.
Ég var fyrsti íslendingurinn til að taka þátt. En nú er það Hildur Bjarnadóttir sem heldur uppi heiðri okkar.
Þetta er auðvitað rándýrt dæmi og ógerlegt nema með styrkjum og starfslaunum. Öll önnur Norðurlöndin eru með fast pláss og halda samkeppni þar sem einhver er valinn til að dvelja í hálft eða eitt ár (hálft ár er lámark fyrir svona dæmi).
Mér leið pínu eins og sveitastrák þegar ég var í ISCP, þarna t.d. voru á sama tíma Su Mei Tse (Lúxemborg), Patricia Piccinini (Ástralíu), Carlos Bunga (Portúgal) og Kirsten Justesen (Danmörku).
Ég fer alltaf af og til á síðuna til að skoða hvað sé í gangi og hverjir eru þarna. Sá t.d. að Jasper Just er núna í Danska stúdíóinu (sá sem var með videóið á carnegie sýningunni og fékk 2. verðlaun).
Það væri óskandi að íslendingar tæku sér fast pláss í ISCP. Þetta er magnað dæmi.
HÉR má sjá síðuna.
29.8.2008 | 15:52
Einn góður...
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 15:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.8.2008 | 23:42
Slagorð
Það er algengt að í auglýsingum á kvikmyndum, bókum og hljómdiskum að vitnað sé í gagnrýni og stjörnugjöf sem viðkomandi hefur hlotið.
Jafnvel hefur komið upp umræða að sumir gagnrýnendur komi með einhverskonar slagorð í gagnrýni sinni vitandi að það verði notað í auglýsingu.
Slíkt er þó ekki gert í myndlist. Ég hef allavega aldrei séð plakat eða auglýsingu á myndlistarsýningu með slagorðum gagnrýnenda.
Verkið Ég hata náttúruna / Aluminati verður tekið niður á Kjarvalsstöðum eftir helgi, þannig að síðustu forvör eru að sjá stykkið á sunnudag.
Þetta er fantagott verk. En ég leit á það aftur í gær og það er farið að sjá á því. Samt eitthvað sem menn ættu ekki að láta framhjá sér fara.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.8.2008 | 21:55
Mér finnst...
Eins og svo oft áður þá er ég að spá í myndlistargagnrýni.
Las skrif Önnu Jóa og Rögnu í Mogganum og hjó eftir því að báðar áttu til að skrifa fyrir hönd áhorfandans eða þá gerðu ráð fyrir að áhorfandinn mundi upplifa það sama og þær.
Anna sagði um sýningu Bjarkar Guðnadóttur í Suðsuðvestri -"Áhorfandinn fær á tilfinningunni að skyrtan tengist barnshöndinni..."
Ragna sagði um sýningu Alexanders Steig -"...blekkingarmynd sem áhorfandinn sér fljótt í gegn um."
Þetta er reyndar algengt hjá okkur. Ég man t.d. að Þóra Þórisdóttir skrifaði um sýningu okkar Birgs S. Birgissonar í Suðsuðvestri í fyrra -"Það veldur því vissum vonbrigðum fyrir þá listunnendur sem þekkja listamennina að sýningin sjálf bætir ekki neinu við..." Þannig dreifði hún ábyrgðinni á eigin áliti yfir á alla þá listunnendur sem þekkja listamennina.
Og ég ætla ekki að þykjast saklaus af þessu og hef oft skrifað "áhorfandinn sér að..", eða eitthvað þvíumlíkt
Einhverntímann var álitið að listgagnrýnandi ætti algerlega að halda persónu sinni frá skrifum. Ég man einmitt eftir viðtali við Einar Hákonarson þar sem hann sagði eitthvað á þá leið að hann hefði ekki áhuga á að vita hvað gagnrýnandinn hefði borðað í morgunmat.
Máski var hann að vitna í eitthvað tiltekið, má vera að gagnrýnandi hafi skrifað um sýningu og sagt sig hafa fundið hafragrautinn koma upp í kok.
Í dag þætti slík lýsing allavega nokkuð snjöll. Í það minnsta "svöl".
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)