26.10.2007 | 21:25
Birgir Andrésson kveður
Döpur frétt að Birgir Andrésson hafi kvatt okkur í þessu lífi. Síðast þegar ég heyrði í honum var rétt áður en hann átti að mæta á sjónlistahátíðina. Ég sá mynd af aðstandendum hátíðarinnar og tilnefndum listamönnum í einhverju blaðinu, en enginn Birgir var á myndinni. Hringdi ég þá í hann til að athuga hvort hann væri ekki við góða heilsu. "Jú, elsku karlinn minn" svaraði Birgir, "ég er bara ekkert að flýta mér Norður, ég er ástfanginn". Birgir hafði stórt hjarta og það er ljós í þessum sorglegu tíðindum að hann hafi dáið ástfanginn. Ég mun sakna hans mikið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2007 | 01:11
Guð og hommarnir
Ég kveikti á Omega um daginn. Þar voru ungir menn sem höfðu lifað tímana tvenna og snúið frá undirheimum í átt til Jesú Krists, þó reyndar með stoppi í tólfsporasamtökum. Þeir voru að skeggræða trúna, segja sögur sínar um lygar, svik, ofbeldi og einn hafði meira að segja rekið vændishús. Ég gladdist fyrir þeirra hönd að þeir hafi fundið tilgang í trúnni. En ég undraðist jafn skyndilega og ég hafði glaðst þegar einn þeirra, með biblíuna við höndina, þrumaði yfir lýðinn Og sjá svo þennan sora sem labbar laugaveginn á Gay pride. Og lýðurinn tók jafn einatt undir og þegar hann hafði lofað Jesús. Merkilegt að menn sem hafa stolið frá heiðarlegu fólki, beinbrotið skuldara og jafnvel neitt konur til að leggjast undir karla fyrir pening, geta allt í einu orðið dómarar og siðapostular í Jesú nafni.
Og svo eru menn ósáttir við nýja þýðingu á biblíunni. Ég hef reyndar ekki lesið hana ennþá en skilst að einhverju hafi verið hagrætt frá því sem var. Engin kynvilla eins og í þeirri gömlu. Dr. Gunni gerir grín af þessu eins og honum er einum lagið í bakþönkum Fréttablaðsins. Hann kvartar svo yfir því að ekkert hafi sést til guðs í árþúsundir og að í allri hommaumræðunni heyrist ekkert frá guði sjálfum. Hmm. Gæti verið að....guð sé ekki svo takmarkaður að hafa hendur, fætur og hárgreiðslu (Jesús var Kristur en ekki guð), sem smellir svo fingri til að skapa heima og geima. Er ekki líklegra að þegar guð hafi skapað manninn í sinni ótakmörkuðu mynd. Þ.e. að hún takmarkast ekki við efnislega líkamsbyggingu mannsins heldur efnislaust tómið (sem er í rauninni fullt af engu) og er handan við ásýnd líkamsformsins? Þar sem guðsmyndin, mannsmyndin og hommamyndin rennur saman í eina vitund.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2007 | 23:25
Að njóta góðs af neyð hvers annars
Bloggar | Breytt 25.10.2007 kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2007 | 12:21
Að standast allt nema freistingar
Jæja, það fór þá þannig að Sjálfstæðisflokkur og Samfylking mynduðu saman ríkisstjórn og hafa nú útdeilt ráðherrastólum. Ekkert kemur svosem stórlega á óvart. Ég hefði reyndar viljað sjá Björgvin í Menntamálaráðuneytinu, án þess þó að úthýsa einu konunni í ráðherraembætti Sjálfstæðisflokksins. En máski stendur Björgvin sig vel í viðskiptamálum og Þorgerður bæti bara um betur í sínu starfi.
Ég vona líka að Þórunn Sveinbjarnardóttir standi sig í umhverfismálunum, hæun er allavega umhverfissinni. Mikið hefði verið traustvekjandi að sjá Mörð Árnason í þeim stól eða öðrum. Hvernig í ósköpunum stóð á því að hann var ekki ofar á lista Samfylkingar? Fáránlegt að hann skuli hafa dottið út af þingi.
Frábært að sjá Jóhönnu aftur í forsvari Félagsmálaráðuneytisins og svo hef ég fulla trú á að Árni M. Mathisen sé kominn í sinn rétta stól.
Einhver skynsemisskekkja hlýtur að orsakað skipan Guðlaugs Þórs sem heilbrigðisráðherra. Einhvernvegin finnst mér að annar stóll hefði hentað honum betur. Hann hefur reyndar reynslu af heilbrigðiskerfinu eftir að hann brenndist á baki um jólin og þurfti sökum þessa að kaupa auka hjálp inn á heimilið sitt, eins og hann orðaði það í einhverju viðtali. Ætli hann hafi hugsað út í það hve mikill meirihluti þeirra sem kynnu að lenda í samskonar óhappi hafi ekki efni á að borga fyrir auka hjálp inn á heimilið? Ég ætla samt að óska honum vel og vona að hann standa sig í þessu nýja hlutverki sínu. Vinni fyrir fólkið, bæti heilbrigðiskerfið og stuðli að því að allir hafi sömu réttindi í heilbrigðismálum. Nái þar með góðu samstarfi við Jóhönnu.
Ég las að sjórnarflokkarnir hafi lofað skattalækkun á árinu. Ætlaði Samfylkingin ekki að hækka skattleysismörkin upp í 140.000 kr. frekar en að lækka skatta ef hún kæmist í stjórn? Máski er þetta vísir að því sem koma skal og þá fyrsta fall Samfylkingarinnar í freistingar auðvaldsins, því Það hentar vissulega þeim sem eru á ráðherralaunum betur að lækka skatta frekar en að hækka skattleysismörk. Slík aðgerð yrði þeim lægst launuðu í haginn.
En eins og Oscar Wilde heitinn sagði; "Ég stenst allt nema freistingar".
Bloggar | Breytt 24.5.2007 kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)