Mini-retro

nikeogadidashlemmur1Er nú kominn úr netlausu sumarbústaðarsumarfríi og þá einnig bloggfríi.

Byrja heimkomuna á lítilli sýningu, en ég tek við af bloggvini mínum Kristbergi sem SÍM listamaður mánaðarins, frá og með morgundeginum.

„SÍM listamaður mánaðarins“ er hugsað sem kynning á meðlimum SÍM (Samband Íslenskra myndlistarmanna) svo ég ákvað að setja upp „Mini-retro“.

Þetta eru bara 4 verk sem verða til sýnis.

Það elsta er frá árinu 1994 og nefnist „Abstrakt nr. 5“. Það var á fyrstu sýningunni sem ég tók þátt í á Íslandi árið 1995 og var í Nýlistasafninu (gamla). Var hluti af 6 mynda röð.

Næstelsta verkið sem ég sýni var hluti af útskriftarverkefni mínu frá AKÍ í Hollandi, „Café Geometry“,  árið 1995. Það var staðbundin sýning en mér fannst þessi mynd svosem geta staðið ein og sér.

Þriðja málverkið (samsett úr tveimur) var á sýningu sem ég hélt í Gallerí Hlemmi árið 2000. "Nike & Adidas",þar sem ég blandaði saman vörumerkjum tveggja íþróttavöruframleiðenda.  Þetta var fyrsta einkasýningin sem ég var verulega ánægður með eftir útskriftarverkefnið. 

Fjórða og síðasta myndin er frá árinu 2008, sú nýjasta í röðinni „XGeo“, þar sem ég blanda saman athafnamálverki og strangflatarmálverki.

Það er engin opnun. Sýningin verður tilbúin á morgun. SÍM er til húsa við Hafnarstræti 16. R.vík.

Öllum velkomið að kíkja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Hallsson

Til lukku með þetta félagi. Ég skoða sýninguna um miðjan ágúst.

Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 6.8.2008 kl. 09:57

2 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Til hamingju.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 6.8.2008 kl. 12:04

3 identicon

er i  Chicago - hefdi viljad kikja i SIM.

til lukku kvedja.

ps. brenglad stafrof aftur.

Anna Jóelsdóttir (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 16:53

4 identicon

Til hamingju. Ég kíkji við.

Ragga (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 18:08

5 identicon

Þú ert örugglega flottur, fyrir þá sem fíla þig..... humm,,,,, en ekki ég....

Auður (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 01:03

6 Smámynd: Villi Asgeirsson

Til hamingju!

Villi Asgeirsson, 7.8.2008 kl. 07:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband