28.10.2008 | 10:45
Flúxarinn Terry Fox látinn
Bandaríski myndlistarmaðurinn Terry Fox er látinn, en hann kvaddi þennan heim í Köln í Þýskalandi í fyrradag.
Terry Fox fæddist í Seattle árið 1943. Hann hóf listferil sinn í San Francisco en fluttist svo til Belgíu þar sem hann starfaði undir formerkjum Flúxus stefnunnar ásamt Nam June Paik, Joseph Beuys ofl.
Fox var þekktastur fyrir gjörninga og hljóðskúlptúr.
HÉR má lesa grein um kappann sem birtist í Artforum árið 1993 og HÉR má hlusta á hljóðverk listamannsins; The Labyrinth Scored for the Purrs of 11 Cats.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 10:53 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.