31.10.2008 | 13:14
List eða dýraklám?
Úkraínski listamaðurinn Oleg Kulik er ansi hressilegur kall.
Hann öðlaðist alþjóðlega eftirtekt árið 1996 vegna gjörningsins "Hættulegur" (Dangerous) í Stokkhólmi þar sem hann var ólaður allsnakinn við staur eins og hundur og réðist að og beit þá sem tóku ekki mark á viðvörunarskilti.
Listamaðurinn var handtekinn fyrir vikið og það var hvorki í fyrsta né síðasta skiptið að lögreglan fjarlægði listamanninn eða listaverk hans á brott.
Oleg hefur viðhaldið álíka dýrslegum gildum í list sinn æ síðan og nú, á listkaupstefnunni FIAC í Frakklandi, voru ljósmyndaverk hans gerð upptæk af lögreglu sökum þess að þau sýndu listamanninn í vafasömum athöfnum með hundum.
Þessi mynd sem ég birti hér er hins vegar í saklausari kantinum.
HÉR má lesa um málið í Artreview.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 13:18 | Facebook
Athugasemdir
jahh það er endemis aldeilis
Brúnkolla (IP-tala skráð) 31.10.2008 kl. 19:05
Þetta er sérstaklega handa þér Brúnkolla mín.
Verk erftir Oleg Kulik sem heitir "Deep into Russia"
Ransu, 31.10.2008 kl. 20:25
Ég gæti semsagt ekki fengið manninn til þess að mála mynd af hesti sem ég er með-:)
sandkassi (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 01:43
Nei Gunnar, ég þykist viss um að hann mundi gera eitthvað annað við hestinn en að mála hann.
Ransu, 1.11.2008 kl. 11:45
já, ætli það ekki
sandkassi (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 11:55
Það þarf allavega ekki að teipa beljuna.
Kristbergur O Pétursson, 1.11.2008 kl. 14:04
jæja, matarlist sjúklingins er þó í lagi. En svo er það spurning, hann gæti hitt einhvern aðila með svipaðar áherslur og úr yrði ást.
Hitt er annað mál að ef hann græðir pening á þessu þá er hann snillingur samkvæmt núgildandi menningalögmálum.
sandkassi (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 14:43
Held að Kulik ríði nú ekki feitum hesti.
Ransu, 1.11.2008 kl. 15:05
Þetta er rosalega flott verk. Nú hef ég enn meiri áhuga á list!
Takk ransu.
Brúnkolla (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 15:09
Er nú samt ekki frá því að það sé að þróast einhver smekkur hjá mér fyrir þessu. Hann er allavega sjálfstætt þenkjandi, það er alltaf byrjunin.
sandkassi (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 15:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.