8.12.2008 | 13:57
Hungur Steve McQueens verðlaunuð
Fyrir myndlistarunnendur að þá má bæta við þessa frétt um (ó)sigur Smáuglana hans Rúnars að breski myndlistarmaðurinn Steve McQueen (já, hann heitir sama nafni og leikarinn frægi) hlaut The discovery award á Evrópsku kvikmyndahátíðinni fyrir myndina Hunger.
Þetta eru sömu verðlaun og McQueen hlaut á kvikmyndahátíðinni í Toronto fyrir skömmu, auk þess hlaut myndin Camera d´or verðlaunin á Cannes hátíðinni í sumar.
McQueen er heimsþekktur myndlistarmaður. Hann er fyrrum Turner verðlaunahafi og verður fulltrúi Breta á Feneyjartvíæringnum á næsta ári.
Hunger er fyrsta kvikmynd McQueens (þ.e. framleidd fyrir kvikmyndahús) og ég hlakka rosalega til að sjá hana.
HÉR má sjá sýnishorn úr myndinni.
Smáfuglar fengu ekki verðlaun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkur: Kvikmyndir | Breytt 10.12.2008 kl. 01:41 | Facebook
Athugasemdir
Verðlaunað, hungrið. Voru verðlaunin hamborgari og franskar, eða eitthvað matarkyns?
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 8.12.2008 kl. 19:31
Snild ! Hvenær sýnir hann í Listasafni Reykjavíkur?
Það er annar listamaður sem heitir Qaritiano og er frá Perú - er að gera það gott í ljósmynda3viddarveki með teikningum og málverkarívafi, með sambland af textil og performance. Hefur þú fylgst með honum ? Geggjaður gaur ! En sorry er ekki á leið til Íslands ¨. Hefur ekki áhuga. Segir að á Íslandi búi bara 350.000 mans en í Durantaro sem er smábær búi 4.424.000 " I come later to Iceland " sagði Petro Paratinio listamaður.
Guðmundur R Lúðvíksson, 10.12.2008 kl. 01:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.