Útpælt ferli

articleÁ artforum.com má nú lesa lesa skrif  Catharynu Drake um "hver var hvar" á opnun Listahátíðar í Reykjavík.

http://www.artforum.com/diary/#entry20273 

Það var reyndar skemmtileg reynsla að upplifa þessa fyrstu daga. 

Til að byrja með, á fimmtudegi,  var listamönnum og þeim tengdir boðið til Bessastaða.  Þar hélt Ólafur Ragnar tölu, svo skáluðu menn og allir kynntu alla fyrir öllum.

Um kvöldið var heilmikil veisla á Domo í boði Greifynjunnar af Habsborg.  Þá voru menn komnir með tenglanetið í gang og lögðu út, enda allir búnir að heilsa öllum á Bessastöðum.

Á laugardeginum bauð i8 svo öllum til veglegrar veislu á Laborus og þá gátu menn dregið í netin, sýningarboð eða heimsóknir.

Króatíski sýningarstjórinn sem ég var í samstarfi við vegna sýningarinnar í 100°galleríi náði allavega að krækja í stóran fisk fyrir sýningu í samtímalistasafninu í Zagreb þegar liðið var á þriðju veisluna. 

Einhvernvegin virtist þetta alveg útpælt ferli, að það þurfi þetta 3 veislur til þess að hlutirnir fari að gerast.


Síðari gjörningur - Smiley

SmileySíðari gjörningurinn við opnun sýningar á verkum Króatískrar samtímalistar í Gallerí 100° fór fram utan gallerís, í anddyri höfuðstöðva orkuveitunnar.

Það var Sinisa Labrovic sem stóð andspænis áhorfendum um stund, flatur á svip. Hann tók síðan upp rakhníf og skar sig frá kinn niður að munnviki sitt hvorum megin við munninn. 

Heldur þvingað bros en engu að síður í anda broskarlsins fræga Smile.


Fyrri gjörningur - The Patriot

ThePatriotFyrri gjörningur á opnun sýningarinnar Welcome í Gallerí 100° var framinn af Slaven Tolj.

Hann fór fram utan gallerís, inni í höfuðstöðvum orkuveitu Reykjavíkur.

Króatíski þjóðsöngurinn, Okkar fagra land, var leikinn á "gettóblaster" en á meðan stóð listamaðurinn og sýndi ólík tákn með hreyfingu hægri handar.

Þjóðsöngur Króatíu hefur verið sá sami síðan 1891, en táknin sem þegnar sýna til að lofa þjóðsönginn hafa tekið breytingum eftir því hverjir stjórna landinu hvert sinnið.

Slaven Tolj fór með öll táknin sem hafa fylgt þjóðsöngnum þessi 117 ár.


Velkomin

orAllir velkomnir á opnun sýningarinnar Welcome í Gallerí 100° í kvöld klukkan 18:00.

Þar sýna 5 listamenn frá Króatíu sem voru valdir af Radmilu Ivu Jankovic, sýningarstjóra hjá Samtímalistasafninu í Zagreb.

Til umfjöllunar er ferðamannalandið Króatía og er sýningin sett upp þannig að frá fyrsta til síðasta listaverks kemst maður, sem ferðamaður um sýninguna, dýpra inn í menningu landsins, sem, líkt og önnur lönd, er hægt og rólega að tapa eigin menningararfi og sigla inn í hnattvæðinguna.

Á opnun fremja listamenn gjörninga.

Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík.  

Gallerí 100° er að Bæjarhálsi 1, húsi Orkuveitu Reykjavíkur og hafa veitumenn staðið sig frábærlega í öllu sem viðkemur sýningunni.  Ber ég Kolbeini Bjarnasyni sérstakar þakkir hér á blogginu mínu sem og Helga "Skjaldbreiða".

Áfram niður bloggsíðuna eru kynningar á listamönnunum  fimm.


Slaven Tolj

Slaven Tolj PatriotSlaven Tolj  fæddist í Dubrovnik árið 1964.

Tolj er þekktastur Króatísku listamannanna fimm, jafnt sem listamaður og sýningarstjóri.

Hann var m.a. með minnistæða  ljósa-innsetningu á lestastöðinni í Kassel á Documenta X.

Það vakti athygli þegar Slaven Tolj var falin umsjón yfir sýningu í Króatíska skálanum á tvíæringnum í Feneyjum árið 2005 þar sem hann valdi einnig listamenn til að sýna í skálanum. En það tíðkast ekki að myndlistarmanni sé gefið álíka vald á þessum tvíæringi. Það vakti ekki síður athygli að þrír af fimm listamönnuum sem hann valdi á þessa virtustu myndlistarsýningu heims voru gersamlega óþekktir, þar af var einn garðyrkjumaður og einn sjómaður. 

Verk Slavens í orkuveitunni heitir Föðurlandsvinurinn (The Patriot) og er óður til þeirra sem féllu í stríðinu um Júgóslavíu við að verja Dubrovnik.

Slaven Tolj mun einnig fremja gjörning á opnun eftir klukkan 18:00.

Hér er hlekkur á eldra blogg þar sem ég velti upp spurningum í kjölfar eins gjörnings Slavens Toljs http://ransu.blog.is/blog/ransu/entry/465246


Sinisa Labrovic

Sinisa Labrovic Artist-Eating-Grass 2007Sinisa Labrovic er fæddur í Sinj árið 1965. Hann var kennari Króatískrar tungu og bókmennta en snéri sér síðan og myndlist.

Hann er höfundur raunveruleikaþáttar um sjö kindur sem vakti umræðu í króatíu og víðar, en þættirnir voru uppbyggðir eins og "Idol" keppni þar sem ein kind var kosin út í lok þáttar og send í sláturhús.

 Sinisa er fyrst og fremst kunnur fyrir ögrandi gjörninga sem má telja sem"body art".

Hans framlag til listahátíðar er vídeóverkið Family News og fjallar um ríka fjölskylduhefð og leiðindi í króatíu. Þ.e. að sitja saman og horfa á fréttir.

Sinisa mun fremja gjörninginn "Smiley" á opnun eftir klukkan 18:00 í kvöld.

Gjörningurinn á myndinni að ofan nefnist Listamaður borðar gras og er síðan í fyrra.


Tanja Dabo

Tanja Dabo welcome1Tanja Daboer fædd í Zagreb árið 1970. Hún er eina konan sem Radmila Iva jankovic hefur valið í þennan fimm manna hóp listamanna frá Króatíu.

Tanja er þó "andlit" sýningarinnar. En verk hennar Welcome er einnig yfirheiti sýningarinnar í orkuveitunni, og kyrrmynd úr myndskeiðinu prýðir plakat, boðsmiða og er víða í kynningu á listahátíðinni. 

Tanja Dabo hefur hlotið viðurkenningar fyrir verk sín á alþjóðlegum sýningum í Króatíu, Þýskalandi, Bandaríkjunum, Japan og Suður Kóreu.
Nýlegar sýningar eru í Galerie Maerz í Linz í Austurríki, HDLU í Zagreb og White Cube í Berlín.

Toni Mestrovic

mestrovic_continuumToni Mestrovic er yngstur Króatanna í 100° galleríi. Hann fæddist í Split árið 1973 og vinnur með video og hljóð innsetningar.  

Nýlegar sýningar eru; "Abyssos"; í Nútímalistasafninu í Zagreb, "Young Art Europe" í MOYA í Vín í Austurríki og "Streams of encounter" í Fagurlistasafninu í Teipei í Taiwan. 

Verkið sem hann sýnir heitir "Continuum" og er stuttmynd sem tvinnar saman gildum verkavinnu og skúlptúrs.

Antun Maracic

AntunMaracic_Lokrum_2000_5Antun Maracic er elstur í hópi Króatanna sem opna í gallerí 100°.

Hann er fæddur í Nova Gradiska árið 1950 og var einn af Ný-konseptlistamönnum Króata á hvörfum níunda áratug síðustu aldar. Maracic er líka gagnrýnandi og framkvæmdarstjóri hjá Umjetnicka galerija í Dubrovnik.

Verkið sem hann sýnir heitir Lokrum og er on-going-prójekt, ekki ólíkt því sem Auggie nokkur í myndinni Smoke stundaði, en Maracic hefur tekið ljósmyndir af eyjunni Lokrum síðan árið 2000 við hin ýmsu veðurskilyrði. Hann leitar eftir matgbreytilegum aðstæðum innan stöðugleika. Myndunum fylgja einnig lýsingar á upplifun.


Allt á fullu

Nú er allt á fullu. Listahátíð í Reykjavík er að bresta á og listamenn og aðstoðarmenn að setja upp listaverk.  Ef maður skreppur í Húsasmiðjuna í leit að einni vissri skrúfu má bóka að maður rekst á einn eða tvo frá einhverri listastofnun í sama tilgangi.

Í mínu tilfelli eru það 6 listamenn frá Króatíu. Þau eru að opna í Gallerí 100°, heimahögum Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi á föstudaginn. Þar eru starfsmenn gallerís á haus að smíða milliveggi og finna ýmsar lausnir í samvinnu við Króatísku listamennina.  Og ég verð að segja að það er vonum framar að starfa með orkuveitunni í þessu. Mjög faglegt.

Hvað um það þá langar mig að nota næstu daga á blogginu til að kynna listamennina lítillega, sem og sýningarstjórann (byrja á henni). 

Hún heitir Radmila Iva Jankovic og er fædd í Zagreb 1963. Listfræðingur og sýningarstjóri við Nútímalistasafnið í Zagreb í Króatíu. Kunnur fyrirlesari í heimalandi sínu og listgagnrýnandi. Hún fjallar um listir á Stöð 3 í Króatíska sjónvarpinu og í útvarpi. 

Radmila sérhæfir sig í sýningum á list í almenningsrými og nýleg sýningarverkefni utan Samtímalistasafnsins eru Tvíæringurinn í Tiranaí Albaníu og sýningaröðin Zadar Live: Artist's Interventions in Urban Space í Króatíu.

Ég kynntist Radmilu þegar ég var í gestavinnustofu ISCP í New York árið 2006.  Hún var þá "Curator in residence" á vegum "SÍM" í Króatíu. Ég sat fyrirlestur hjá henni um Króatíska samtímalist og fannst mjög spennandi.

Í kjölfarið fórum við að vinna að þessari sýningu sem opnar á föstudaginn klukkan 18:00.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband