18.8.2008 | 22:32
Þríviður kveður
Náði að fara í gær á síðasta sýningardegi og sjá sýninguna "Þríviður" í Listasafni Reykjanesbæjar.
Ég hafði heyrt gott um sýninguna og hafði því væntingar. Þær stóðust.
Listamennirnir eru þrír, Guðjón Ketilsson, Hannes Lárusson og Helgi Hjaltalín Eyjólfsson. Þeir vinna allir í trjávið. Gæla við hönnun hluta en fást engu að síður við rýmiskenndan skúlptúr.
Tvímælalaust flottasta sýning sumarsins.
Ég verð samt að benda á skemmtileg tengsl á milli verks Hannesar Lárussonar og sýningar eiginkonu minnar, Guðrúnar Veru Hjartardóttur, í Deiglunni fyrr á árinu sem/og í Króatíu. (Sjá HÉR og HÉR). En Hannes fékk fólk til að sitja á skúlptúrunum sínum og horfa fram. Sýndi svo upptökuna á videói sem lúppaði afturábak og áfram.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:34 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.