Fleiri fossar

fossÓlafsFossar Ólafs Elíassonar hafa áđur ratađ inn á bloggiđ mitt vegna frétta um saltúđa og túrisma.

Ég hef bara birt póstkortalegar tölvugerđar myndir og Mbl. hefur einnig bara birt tölvugerđar myndir međ sínum fréttum um fossana

Hlynur Hallsson kom einmitt međ athugasemd sökum ţessa undir einu blogginu. 

Ég fékk svo sendar myndir frá íslenskum kollega í NYC af fossunum. Birti hér eina.

Á síđunni http://www.nycwaterfalls.org/má einnig sjá fullt af ljósmyndum af fossunum og líka viđtal viđ Ólaf, útskýringu á virkninni o.fl. 

Svo má slá "New York Waterfalls" inn á YouTube og sjá margar myndir af fossunum. En ţeir eru flottari á hreyfimynd.


Listir eru afliđ

IcelandKannski hafa margir lesiđ og bloggađ um ţessa grein Jon Henleys, Fishing for answres, í The Guardian.  En ég las hana áđan og ţótti hún merkileg sökum ţess ađ Henley segir vonir Íslands vera í sjávarútvegi og MENNINGU.

Hann talar um poppara eins og Mugison, GusGus og SigurRós og listamenn á borđ viđ Ragnar Kjartansson,  og Gjörningaklúbbinn og hönnunar-myndlist Hrafnhildar Arnardóttur og Jóns Sćmundar Auđarssonar (sem hann vitnar oft í).

Listir eru semsagt afliđ sem getur mótađ Nýja Ísland (skálda ţarna ađeins á milli lína Henleys, en sá er samt bođskapurinn).

Vissulega virđist ţetta einhverskonar hugmynd um menningu sem markađsvöru, sem er gott og gilt, en sem slíka hlýtur samt ađ ţurfa ađ hugsa hana á öđrum forsendum en undanfarin ár. 

Ađ á eftir krossfestingunni er upprisan...ţegar andinn stígur upp úr efninu.


Fé flćđir úr fossum Ólafs Elíassonar

fossBorgarstjórn NYC hefur tilkynnt ađ fossar Ólafs Elíassonar hafi skilađ borginni 69 milljón dollurum vegna túrisma.

Frá ţessu er greint í New York Times sem má lesa HÉR ásamt bloggathugasemdum, en menn virđast ekki á eitt sammála um hvernig reiknisformúlu á ađ nota, hvort fólk hafi gagngert komiđ til NYC til ađ skođa fossana, hversu mikill kostnađur fer í ađ laga vegna umhverfisskemmda sökum saltúđa o.fl.

Eins og einn bloggari komst ađ orđi;

"Waterfall project at the Brooklyn Bridge served “no” Green use both active nor passive thus it was a statement of art that served ‘no’ purpose except a money drain".


Útfarastemmning á uppbođum

Bacon_FreudŢeir eru ekki sérlega bjartsýnir listaverkadílerar í Lundúnum ţótt ađ hálfklárađ verk Luciens Freuds af Francis Bacon hafi selst á háu verđi og vonum framar. 

Önnur verk eftir t.d. Andy Warhol og Gerhard Richter fóru langt undir markađsverđi og verk eftir Takahashi Murakami fékk ekki tilbođ yfir lámarkskröfum.

Fyrirsögnin "Funeral Mood at London auctions" hjá "ARTINFO" segir allt sem segja ţarf.


mbl.is Málverk seldist á milljarđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Sólir og sjö ára kúrvur

PlatonicSolidsÉg brá mér út fyrir borgarmúrana á helgarnámskeiđ á Sólheimum í Grímsnesi á vegum Mannspekifélagsins á Íslandi.

Ađal fyrirlesari og gestur Mannspekifélagsins, Henk Jan Meyer,  rýndi í dulvísindi Rudolfs Steiners og útskýrđa ţróun mannsins út frá sólum og plánetum og áhrif ţeirra á "kúrvur" sem eiga sér stađ í lífi manna á 7 ára tímabilum

Ég ćtla ekki ađ reyna ađ hafa neitt eftir fyrirlesaranum, enda er hausinn á mér gersamlega steiktur eftir helgina.

Henk Jan ţessi er myndlistarmađur og ţví fylgdi námskeiđinu listrćn sköpun, en listir eru mikilvćgur partur í mannspekinni.

Teiknićfingar byggđust á ţví ađ skapa ekki út frá eigin vilja. Ađ vera ekki listamađurinn sem túlkar heldur ađ vera ţjónn efnisins sem mađur er ađ vinna međ.

Međ sama hćtti handfjatlađi ég svo hveraleirklessu yfir í platónsk form og reyndist ţađ nokkuđ erfitt.

Óneitanlega fróđlegt og frískandi ađ rýna í listir og dulvísindi á ţessum síđustu og alls ekki verstu tímum.


Endalok listkaupstefnanna

buyerMenn reyna greinilega ađ halda haus á listkaupstefnunum og má sjá í greinum um Scope og Frieze ađ galleríistar hafa áhyggjur hve sala á listaverkum fór hćgt af stađ og er léleg miđađ viđ í fyrra. HÉR má lesa um Scope og HÉR um Frieze í Artinfo).

Listaverkadílerar mega ţó ekki virka neikvćđir útáviđ.  Bara jákvćđir og bjartsýnir.

Ég held ađ ţetta hljóti nú samt ađ vera upphafiđ ađ endalokum listkaupstefnusenunnar sem hefur ráđiđ ríkjum undanfarin ár.

Ađ héđan í frá verđa Art Basel, Frieze og ţessháttar uppákomur ekki lengur merkilegustu árlegu listviđburđirnir, jafnvel ţótt George Michael og Björgólfur Thór láti sjá sig á svćđinu.


mbl.is George Michael og Björgólfur Thor á Sirkus
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Sagan og samhengiđ

munchFór á sýninguna Ást viđ fyrstu sýn í Listasafni Íslands.   Ţetta eru verk úr eigu Ţýska iđjuhöldsins Reinolds Wurth sem jafnframt rekur Museum Wurth og Kunsthalle Wurth (sjá HÉR).

Á sýningunni má sjá verk eftir Marga meistara módernismans. Magnađ verk eftir Victor Vasarely, Edward Munch, Hans/Jean Arp, Max Beckman,  Andre Masson og ćđisleg pínulítil mynd eftir Georges Rutault.  Svo eru ţarna Alex Katz, Stephan Balkenhol, Anthony Gormley, Barry Flanigan, David Hockney, eitt samstarfverkefnum Basquiat, Clemente og Warhols o.m.fl.

Semsagt fullt af góđu stöffi.

Ţetta er í raun akkúrat ţađ sem viđ förum á mis viđ hér heima, sögu og samhengi. katzViđ höfum einfaldlega ekki ađgang ađ ţessu nema í bókum og á neti.  En ţađ er svo fáránlega fjarlćgt ţví ađ standa frammi fyrir raunverulegum listaverkum, finna nćrveru ţeirra en ekki sjá bara fjarlćga fjöldaframleidda ímynd.

Ţví er gott fyrir landann ađ fá svona sýningar og ţá ţarf auđvitađ ađ gera sér ferđ á listasafniđ.

Myndir. (Efri) Vampíra eftir Edward Munch, 85x110 cm. frá árinu 1917.

(Neđri) Tríó eftir Alex Katz, 112x489 cm. frá árinu 2006


Samkeppni á portrettmyndum af Obama

ObamaRakst á tilkynningu um samkeppni á portrettmyndum af Barack Obama forsćtisframbjóđanda demókrata í BNA.

Máski fullsnemmt ađ kalla ţćr "presidential portraits" eins og er gert í auglýsingu, en ţví ekki...?

ţetta er opin samkeppni svo allir geta sent inn verk.

Fyrir áhugasama ţá er hlekkur á síđuna HÉR .

 


Ađ mála á íslensku

Las af listum pistil Bigga í Maus í Mogganum (Gaman ađ hann sé kominn til liđs viđ menningardeildina) og heyrđi spjall hans á Xinu.

Biggi var ađ spá ţví ađ eftir skellinn í útrásargleđinni munu popparar hér heima taka upp hinn forna siđ ađ syngja á íslensku. 

Og ţá hljóta listmálarar ađ fara ađ mála á íslensku?" 

Myndhöggvarar ađ...?..og svo koll af kolli.

 


Ţessi stemmning var í bođi...?

New-York-City-WaterfallsEinhvernvegin finnst mér list Ólafs oft ganga út á ţetta.   Ađ geta búiđ til  magnađa stemmningu, eins og náttúran, og svo er bara slökkt...

...Ţessi stórfenglega náttúrustemmning var í bođi Landsbankans...eđa...Glitnis...eđa...?

Ólafur er á mörkum einhvers industríalisma og fagurlista. Og fáir listamenn kalla fram jafn mikla tvígreiningu í verkum sínum. 

Ađ ţví leytinu er hann spennandi listamađur.

Flottur ađ sjá og allir geta haft skođun á ţví sem hann gerir, svo lengi sem hann er ekki steyptur inn í helgimynd.

Ég missti reyndar af New York ferđ sem ég hafđi ákveđiđ á fossatímabilinu, tók ađ mér kennslu í stađinn.  En ég hef tröllatrú á ađ ţađ hafi veriđ magnađ ađ sjá foss renna úr ţví sem virđist vera lausu lofti.


mbl.is Slökkt á fossum Ólafs í kvöld
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband