23.1.2008 | 23:46
Gullöldin
Sá loksins myndina L´Age D´Or (Gullöldin) í gćr. Hef leitađ ađ henni lengi og rakst á hana á bókasafni LHÍ. Hún var gerđ áriđ 1930 af Luis Bunuel sem einnig skrifađi handritiđ ásamt Salvador Dali.
Myndin fjallar, í stórum dráttum, um mann og konu sem eru ađ reyna ađ eiga saman unađstund en eru trufluđ í sífellu. ţau líđa kvalir fyrir ţađ eitt geta ekki syndgađ í friđi. Mađurinn fer ađ sjá ofsjónir, sér eitthvađ kynferđislegt út úr furđulegustu hlutum, og konan tottar tá á marmarastyttu af mikilli áfergju. Hey, ţetta var 1930.
Eins og venjulega ađ ţá gerir Bunuel stólpagrín ađ kirkjunni, dyggđunum og borgarastéttinni. Ţegar myndin var frumsýnd í París á sínum tíma varđ allt vitlaust. Hćgri öfgasinnar gengu berserksgang um bíósalinn, brutu sćti og hentu bleki á bíótjaldiđ. Myndin var svo umsvifalaust bönnuđ af kvikmyndaeftirlitinu og Bunuel sakađur um klámfengni og ađ guđlast.
Einhvernvegin virkar kvikmyndaiđnađur samtímans hálf geldur í samanburđi viđ ţetta.
21.1.2008 | 23:01
Gordon fćr Haftmann
Skoska videólistamanninum Douglas Gordon var úthlutađ Roswitha Haftmann verđlaunin í Sviss í dag.
Ţetta eru um 9 milljónir sem hann fćr í sinn vasa en Gordon hefur áđur hlotiđ merk verđlaun. En hann hlaut Turner verđlaunin, Bresku, áriđ 1996.
Gordon, sem er fćddur í Glasgow áriđ 1966, er kunnur fyrir videóinnsetningar ţar sem hann nýtir gamlar kvikmyndir og hefur hann sérstakt dálćti á Hitchcock myndum. Eitt af hans ţekktari verkum heitir "24 hours-Psycho" og sýnir kvikmynd Hitchcocks, Psycho, í hćgagangi frá upphafsatriđi til enda í 24 klst. Máliđ snýst ţá fyrst og fremst um tíma og rými.
Ég sá akkúrat sturtuatriđiđ frćga ofurhćgt í tćpa klst. ţegar ég sá verkiđ á sýningu hans, Timeline, í MoMA í New York í hittifyrra.
Ekki má svo gleyma kvikmynd hans um Zidane, sem var sýnd hér á kvikmyndahátíđ í fyrra og Sigurjón Sighvatsson framleiddi.
http://www.dexigner.com/art/news-g13271.html
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2008 | 21:42
Uppistand
Hef ţađ frá traustum ađila ađ ţegar veisla fyrir Erró var haldin í Höfđa um helgina hafi Dagur, fyrrverandi borgarstjóri, veriđ međ hálfgert uppistand, og veriđ hrókur alls fagnađar.
Ekki seinna vćnna fyrir listamanninn margrómađa ađ fá veisluna og borgarstjórann unga í bođiđ, ţví ţótt ađ uppistand Ólafs og Vilhjálms á Kjarvalsstöđum í kvöld hafi veriđ bráđfyndiđ ađ ţá virkađi ţađ samt eins og upphafiđ á endanum á langdregnum skrípaleik.
![]() |
Ólafur og Vilhjálmur stýra |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
19.1.2008 | 17:14
Hulda fékk Guđmundu
Hinn árlegi styrkur úr sjóđi Guđmundu S. Kristinsdóttur sem Erró stofnađi til minningar um móđursystur sína, og er ćtlađur til listakvenna, var afhentur í dag . Styrkinn, sem nemur 250.000 krónum, hlaut Hulda Stefánsdóttir. Spurning hvort ekki vćri ráđ ađ hafa ţetta annađ hvert ár og hćkka upphćđina um helming.
En auđvitađ er ţetta spurning um heiđurinn og er Hulda komin í góđan hóp listakvenna. En áđur hafa ţćr Ólöf Nordal, Finna Birna Steinsson, Katrín Sigurđardóttir, Gabríela Friđriksdóttir, Sara Björnsdóttir, Ţóra Ţórsdóttir, Guđrún Vera Hjartardóttir og Hekla Dögg Jónsdóttir hlotiđ ţennan sama heiđur.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 17:15 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
18.1.2008 | 00:42
Davíđ fékk Dungal
Ég sat í fremstu röđ á Borginni, eins og hver önnur grúppía, ţegar styrkţegar Dungal sjóđsins voru kynntir.
Ég var búinn ađ veđja á Davíđ Örn og viti menn....
Dungal sjóđurinn er myndlistarstyrkur hjónanna Gunnars Dungal og Ţórdísar Öldu í minningu Margrétar og Baldvins Dungal, og er ćtlađur ungum og upprennandi, myndlistarmönnum. Í rćđu sinni minntist Gunnar einmitt á ađ ţau hjónin fengjust ađallega viđ ađ rćkta hross og af ţeirri samlíkingu ađ dćma er styrknum ćtlađ hlutverk í uppbyggingu fyrir framtíđina eđa ađ skapa veglegt stóđ til útflutnings.
Sjóđurinn hét áđur Listasjóđur Pennans og hóf styrkveitingu áriđ 1992 og ćtiđ veriđ nokkuđ hittinn á listamenn sem síđar hafa orđiđ afkastamiklir á sviđi myndlistar (Ég fékk styrkinn áriđ 2000 )
Davíđ Örn Halldórsson hlaut stóra styrkinn ađ ţessu sinni. Fjárupphćđ 500.000.kr. Mér ţykir ţađ vel valiđ. Davíđ útskrifađist úr grafíkdeild LHÍ áriđ 2002 (síđasta deildarútskriftin). Sýndi međ Homo Graficus hópnum og krotađi líka á veggi víđa um borgina og á salerni. Sýndist ég allavega sjá handbragđ hans á karlaklósettinu á Sirkus fyrir skömmu. Hann kom síđan fram sem gljáfagur gimsteinn á sýningu í Safni ehf. í fyrra og hefur veriđ á blússandi syglingu síđan. verulega gaman ađ fylgjast međ honum.
Styrki ađ upphćđ 300.000 kr. hlutu Birta Guđjónsdóttir og Björk Viggósdóttur.
Birta hefur ţegar látiđ ađ sér kveđa í sýningarhaldi og sýningarstjórn. Björk Viggósdóttir er hins vegar splunkuný í bransanum, útskrifađist frá LHÍ í hittifyrra og er á leiđ í framhaldsnám.
Auk fjárstyrksins geri ég ráđ fyrir ađ Gunnar og Ţórdís kaupi verk eftir listamennina, en ţau hafa gert ţađ hingađ til og eiga veglegasta safn listaverka.
Hér eru styrkţegar sjóđsins frá upphafi:
1992
Ásta Ólafsdóttir
Finna Birna Steinsson
1993
Halldór Ásgeirsson
Guđrún Einarsdóttir
1994
Guđrún Hjartardóttir
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson
1995
Inga Svala Ţórsdóttir
Guđný Rósa Ingimarsdóttir
Viđurk. Sigríđur Sigurjónsdóttir
1996
Ólöf Nordal
Finnur Arnar Arnarson
1997
Anna Guđjónsdóttir
Sigrún Ólafsdóttir
Birgir Snćbjörn Birgisson
1998
Gabríela Friđriksdóttir
Ţóroddur Bjarnason
Ţorbjörg Ţorvaldsdóttir
1999
Hildur Bjarnadóttir
Valgerđur Guđlaugsdóttir
Hlynur Hallsson
2000
Hekla Dögg Jónsdóttir
Sćrún Stefánsdóttir
Jón Bergmann Kjartansson Ransú
2001
Olga Soffía Bergmann
Egill Sćbjörnsson
Sara Björnsdóttir
2002
Erla S. Haraldsdóttir
Jóhann L. Torfason
2003
Unnar Örn Jónasson
Ţórdís Ađalsteinsdóttir
2004
Helgi Ţórsson
Sigurđur Guđjónsson
2005
Ţórunn Maggý Kristjánsdóttir
Jóhannes Atli Hinriksson
Harpa Árnadóttir.
2006
Darri Lorenzen
Hye Youn Park
Kristín helga Káradóttir
2007
Davíđ Örn Halldórsson
Birta Guđjónsdóttir
Björk Viggósdóttir
![]() |
Ţrír myndlistarmenn hljóta styrk úr Dungalsjóđnum |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
5.1.2008 | 12:16
Einkennileg ađgerđ
Jćja, ţá skýrast línur eilítiđ međ Guđjón leikhússtjóra Borgarleikhússins og Jón Viđar leikhúsgagnrýnanda DV, en í Morgunblađinu er frétt og viđtöl vegna afnáms á frumsýningarmiđum Borgarleikhússins til Jóns.
Eins og ég greini frá í síđasta bloggi ađ ţá virkar ţetta frekar óréttlát og einkennileg ađgerđ í garđ fjölmiđils og gagnrýnanda ađ hálfu leikhússtjórans, burt séđ frá áliti hans á Jóni. Máliđ snýst augljóslega um ósćtti Guđjóns viđ gagnrýni Jóns á leikhúsiđ og leikhússýningar og ađgerđin er fyrst og fremst yfirlýsing frá Guđjóni en ekki nálgunarbann á Jón viđ Borgarleikhúsiđ.
Réttlćting Guđjóns á ađgerđinni er ađ hann sé ađ taka upp hanskann fyrir áhorfendur leikhússins, En í dómnum segir Jón "Borgarleikhúsiđ breytist í grafhýsi. Snobbliđiđ mćtir til ađ klappa, en almenningur finnur nályktina, sem leggur langar leiđir, og flýr á brautu.
Međ ţessu segir Guđjón ađ Jón segi ađ áhorfendur séu fífl, "svona dónaskap viđ mína gesti líđ ég ekki, bćtir hann svo viđ. Ţetta er gegnsć hula ađ mínu mati, enda vegur Jón hart ađ starfi Guđjóns í dómi, og túlkunin "fífl" er eitthvađ sem Guđjón býr til, alveg upp á eigin spýtur. Snýst ţetta ţá hvorki um umrćđu né innkomu, eins og ég velti fyrir mér hér ađ neđan. Ţetta er bara persónulegt.
Hins vegar flokkar Jón leikhúsgesti í snobbliđ og almenning og slíkt er varla í verkhring okkar gagnrýnenda.
![]() |
„Gagnrýnendur eiga ađ vera mannbćtandi“ |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 20:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
4.1.2008 | 01:37
Enga gagnrýni, takk!
Athyglisverđ ákvörđun Guđjóns Pedersen leikhússtjóra Borgarleikhússins ađ svipta Jóni V. Jónssyni, leikhúsgagnrýnanda DV, frumsýningarmiđum. Ástćđan ku vera dómur Jóns Viđars um leikritin Endstation Amerika og Rćđismannsskrifstofan ţar sem hann sagđi m.a. ađ nálykt legđi frá Borgarleikhúsinu.
Jón hefur aldrei veriđ nćrgćtinn gagnrýnandi en mér er spurn hvort rétt sé af leikhússtjóra ađ mismuna gagnrýnendum (og ţá fjölmiđlum) međ ţví ađ loka á einn ţeirra á ţeim forsendum ađ hann skrifi ekki ađ hans skapi, jafnvel ţótt Guđjón kunni ađ hafa skođanir á hlutverki gagnrýnenda sem Jón fellur ekki undir.
Samband lista og listgagnrýni er "love-hate"-samband sem eđlilega ćtti ađ fara í málefnalega umrćđu ţegar skođanir skarast. Guđjón getur ţannig séđ gagnrýnt gagnrýnandann í orđi en kýs ţess í stađ ađgerđ sem er ţá einhverskonar mótmćli eđa yfirlýsing. Enda getur Jón haldiđ áfram skrifum ţótt hann fari ekki á frumsýningu.
Í myndlistinni hef ég rekiđ mig á ađ "slćm" gagnrýni virđist ekki hafa áhrif á sölu listaverka. Í leikhúsi kann "slćm" gagnrýni ađ draga úr ađsókn og hafa ţannig bein áhrif á innkomu. Fjárhagslegir hagsmunir eru ţá í húfi og ţví spurning hvort ađ ađgerđ Guđjóns, sem sýnir ţađ í verki ađ hann vilji enga gagnrýni frekar en óvćga gagnrýni, sé vegna umrćđunnar eđa innkomunnar?
http://www.visir.is/article/20080103/LIFID01/80103085
http://www.dv.is/frettir/lesa/3667
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:40 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)
31.12.2007 | 15:11
Topp tíu: Myndlistarsýningar ársins 2007
Í dag birtist í Morgunblađinu samantekinn topp-tíu-listi fjögurra myndlistargagnrýnenda hjá Morgunblađinu. Ţar sem ég á bara 25% í listanum langar mig ađ birta topplistann minn hér á blogginu.
Myndlistarsýningar ársins 2007
1) Undrabörn, Mary Ellen Mark ásamt Martin Bell, Ívari Brynjólfssyni og nemendum úr Öskjuhlíđarskóla og Safamýrarskóla, Ţjóđminjasafn Íslands.
2) Guđ, Ragnar Kjartansson, Nýlistasafniđ
3) Cobra Reykjavík, Cobra, Listasafn Íslands
4) Kristján Davíđsson, Listasafn Íslands
5) Rotnandi sýning/ Tilfinningalandslag, samstarfsverkefni 14 alţjóđlegra listamanna međ sýningarstjóranum Mathieu Copeland, Safn ehf.
6) My Oz, Roni Horn , LR-Hafnarhúsiđ
7) Eggert Pétursson, LR-Kjarvalstađir
8) High Plane VI, Katrín Sigurđardóttir, Listasafn Íslands
9) Liminality-Alveg á mörkunum, Hekla Dögg Jónsdóttir, Nýlistasafniđ.
10) Ljóshćrđ ungfrú heimur 1951-,Birgir Snćbjörn Birgisson, LR-Kjarvalsstađir
Nokkrar sýningar voru ađ detta inn og út af listanum og ţessar enduđu rétt fyrir utan hann: Ferđir, Kristinn G. Harđarsson, Suđsuđvestur, Sameiginlegt líf/Uppstillingar, Louisa Matthíasdóttir og Leland Bell, Hafnarborg, Minning Ţórarins Nefjólfssonar, Magnús Pálsson, Gallerí i8, Volume of silence, Bernd Koberling í Gallerí Turpentine, Í beinni - Viđburđur verđur sýning, Pierre Huyghe í Hafnarhúsinu, Still Drinking about you, Kolbeinn Hugi Höskuldsson í Nýlistasafninu og Miđbaugur og Kringla, samsýning Norrćnna listamanna í Kringlunni og miđbć.
Mér ţótti erfitt ađ velja á milli sýninga Mary Ellens Marks í Ţjóđminjasafninu og Ragnars Kjartanssonar í Nýlistasafninu í fyrsta og annađ sćtiđ. Var verulega snortinn af báđum sýningunum, en á mjög ólíkan hátt, enda mjög ólíkar sýningar. Ragnar náđi manni međ skemmtilist (artentainment) sem var ađ sama skapi vel útfćrt rýmisverk, og endurtekin mantran, "Sorrow conquers happyness", hreyfđi allverulega viđ tilfinningasviđinu.
Sýningin Undrabörn í Ţjóđminjasafninu er í hefđbundnari kantinum (hún er enn í safninu). Uppistađan er ljósmynda-ritgerđ (photo-essay) Mary Ellens Marks af fötluđum börnum í Öskjuhlíđarskóla, Safamýrarskóla og Lyngási, auk heimildarmyndar Martins Bell um Alexander (nemanda viđ Öskjuhlíđarskóla), ljósmyndum Ívars Brynjólfssonar af innviđi skólanna og list barna úr skólunum. Ţetta er falleg, áleitin, metnađarfull og málefnaleg sýning. En megin ástćđan fyrir ţví ađ ég vel Undrabörn í fyrsta sćtiđ umfram sýningu Ragnars, er ađ umrćđan sem hún hefur skapađ á međal almennings hefur haft áhrif á framtíđ skólanna. Hugmyndir ráđamanna um ađ fatlađir eigi betur heima í almennu skólakerfi, sem setti Öskjuhlíđarskóla og Safamýraskóla upp viđ vegg og allt útlit var fyrir ađ slíkir sérskólar yrđu lagđir niđur á endanum, hefur snúist viđ. Menntamálaráđuneytiđ hefur stađfest ađ hanna eigi nýjan sérskóla međ enn betri ađstöđu. Er ţetta breytta viđhorf mikiđ til sýningunni og ađstandendum hennar ađ ţakka.
Gleđilegt nýtt myndlistarár!
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 15:12 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
24.12.2007 | 15:59
Listamađur kynntur; Natalia Goncharova
Natalia Goncharova fćdd áriđ 1881 í Ladyshkino í Rússlandi. Menntađi sig höggmyndalist og arkitektúr í Moskvu, en snéri sér svo ađ málaralistinni.
Í karllćgum listheimi féll hún í skugga eiginmanns síns, listmálarans Mikhails Larinovs, en Goncharova var engu ađ síđur frumkvöđull í Rússneskum módernisma, sýndi einnig međ Ţýska expressjónista hópnum "Der Blaue Reiter" og á öđrum tug 20. aldarinnar tilheyrđ hún fámennum hópi listamanna svokallađs Rayonnisma, sem er innan álíkra hugmynda og Fútúrismi og Vorticismi.
Áriđ 1919 fluttist hún til Parísar ţar sem hún naut skammrar hilli fyrir leikhúshönnun og sviđsetningar. Hún varđ síđan heilsuveil og lést í fátćkt í París áriđ 1962. Hún var flestum gleymd utan Rússlands ţegar verk eftir hana, "Ađ týna epli" seldist á uppbođi hjá Christie´s í Lundúnum á 4,9 milljónir punda í júni síđastliđnum.
Goncharova spannađi nokkuđ breytt sviđ í málaralistinni, leyfđi sér jafnvel ađ fara út í dekorasjón ţegar kom ađ abstraktmálverki (á bannlista hins karllćga myndlistarheims). ţađ eru ţó Neo-prímitíf málverk hennar sem standa uppúr, en hún heillađist snemma ađ alţýđulist sem einkenndi verk hennar alla tíđ og tvinnađi saman alţýđulist og trúarlegar ímyndir eđa íkonamyndir međ sláandi hćtti . Ţví er tilefni ađ birta mynd hennar "Fćđing frelsarans" međ á ţessari kynningu á listamanni á ađfangadegi jóla.
Gleđileg jól
Bloggar | Breytt 26.12.2007 kl. 13:28 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)
20.12.2007 | 01:53
Hendrix og graffití
Ţetta 80´s myndskeiđ viđ lag Jimi Hendrix, Purple Haze, er eitt ţađ flottasta sem ég hef séđ. Til sćlla minninga um unglingsárin fann ég ţađ á netinu.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 02:11 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)