Hungur Steve McQueens verðlaunuð

hunger_steve-mcqueenFyrir myndlistarunnendur að þá má bæta við þessa frétt um (ó)sigur Smáuglana hans Rúnars að breski myndlistarmaðurinn Steve McQueen (já, hann heitir sama nafni og leikarinn frægi) hlaut The discovery award á Evrópsku kvikmyndahátíðinni fyrir myndina Hunger.

Þetta eru sömu verðlaun og McQueen hlaut á kvikmyndahátíðinni í Toronto fyrir skömmu, auk þess hlaut myndin Camera d´or verðlaunin á Cannes hátíðinni í sumar.

McQueen er heimsþekktur myndlistarmaður. Hann er fyrrum Turner verðlaunahafi og verður fulltrúi Breta á Feneyjartvíæringnum á næsta ári.

Hunger er fyrsta kvikmynd McQueens (þ.e. framleidd fyrir kvikmyndahús) og ég hlakka rosalega til að sjá hana.

HÉR má sjá sýnishorn úr myndinni.


mbl.is Smáfuglar fengu ekki verðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

George Brecht látinn

160px-brecht_dripmusicFluxus listamaðurinn George Brecht lést um helgina á elliheimili í Köln. 

Brecht fæddist í New York árið 1926 en fluttist til Frakklands á sjöunda áratugnum þar sem hann tók þátt í Fluxus uppákomum og rak þar Fluxus listaverkabúð fram til ársins 1968, en þá flutti hann til Lundúna og að lokum til Kölnar árið 1972.

Ludwigsafnið í Köln hélt heilmikla yfirlitssýningu á verkum hans þar í borg árið 2005. Hann átti líka verk Fluxussýningunni miklu í Listasafni íslands árið 2004.

Brect starfaði náið með John Cage, Nam June Paik og Robert Filliou, jafnt sem myndlistarmaður og tónskáld og tvinnaði þessar listgreinar saman í gjörningum sínum.

Hans frægasta verk er Drip music, sem hann samdi árið 1959 og frumsýndi ári síðar.

Hann hefur samið ýmsar útgáfur af Drip tónlistinni.

Á myndinni er hann að "performera" slíkt verk og hér að neðan má sjá og heyra verkið í nýlegri flutningi.

 


Meiri Kapoor

kapoor meFékk sendan link á grein í Art & Architecture þar sem er fjallað um nýtt útilistaverk Anish Kapoor, Cloud gate í Millennium park í Chicago.

Þetta er fyrsta verk eftir Kapoor í almenningsrými í Bandaríkjunum og er magnað á mynd.

Örugglega enn magnaðra í raunverunni.


Kapoor er æði

kapoor GuggenheimÞetta verk heitir Minningog er eftir bresk-indverska listamanninn Anish Kapoor .

Þetta er splunkunýtt stykki,  stór belgur úr stáli, og er til sýnis í Guggenheim í Berlín fram til febrúar, en mun síðan halda til höfuðsafnsins í Nýju Jórvík.

Kapoor hefur aldrei unnið í þetta efni áður.

Formið minnir dálítið á eldri verk listamannsins, allavega frá þessu sjónarhorni (Þ.e. þegar hann hellti þurru litardufti á form, nema að hér notar hann litbrigði riðsins).

Ég væri rosalega til í að vera í Berlín núna og skoða.  Kapoor er æði.


Carolyn Christov-Bakargiev sýningarstjóri Documenta XIII

carolyn-christov-bakargiev-Carolyn Christov-Bakargiev hefur verið útnefnd næsti stjóri á Documenta.

Documenta er sýning haldin í Kassel í Þýskalandi á 5 ára fresti (fimmæringur) og er einhver vænlegasti myndlistarviðburður sem fyrir finnst á heimskringlunni.  Hefur t.d. framyfir Feneyjartvíæringnum að vera laus við kaupstefnufnyk.

Documenta er hins vegar sýningastjórasýning og stendur og fellur með honum/henni.

Christov-Bakargiev á því vandasamt verk fyrir höndum og gott að fá tíma til undirbúnings, en næsta Documenta, sem er númer 13, verður árið 2012

Carolyn Christov-Bakargiev var sýningarstjóri hjá PS1 í New York á árunum 1999-2001 en er nú yfir sýningastjórn Castello di Rivoli Museum of Contemporary Art í Turin á Ítalíu.

Hún er einnig "freelance" og var m.a. sýningarstjóri á tvíæringnum í Sydney á þessu ári og afrakstur þess hefur væntanlega gert útslagið fyrir nefnd Documenta.


Flúrið við Axl-arlið

gunroseUpplýsi það hér og nú að ég er með Guns N´ Roses tattú á handleggnum, efst við Axl-arlið.

Fékk mér flúrið á unglingsárunum en þar sem að ermalausa tímabilinu mínu er löngu lokið að þá hefur farið lítið fyrir flúrinu á opinberum vettvangi undanfarin ár. 

En ég ber það stoltur þessa dagana.

Chinese Democracy er magnað dæmi.


mbl.is Axl Rose horfinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vettvangur fyrir skapandi efni

-tv-cartoonMenningarefni Ríkissjónvarpsins er yfirleitt í einhverskonar "infótainement" formi þar sem "infóið" og "entertainmentið" er hvorutveggja er í lámarki. 

RÚV er engu að síður vörður íslensks menningarefnis. En ég verð að játa að eitt áhorf á Gott kvöld hefur dugað mér út ævina.  Ég man ekki einu sinni hvaða gestir voru á skjánum.

Ég vil fá myndlist í sjónvarpið. Þó ekki væri nema smá og þá líka pínu vandað og reglulegt. Ekki bara myndir frá einhverri kaffihúsasýningu þegar stafir renna yfir skjáinn í lok fréttatíma.

Kastljós átti jú að sinna öllum menningarviðburðum og málefnum líðandi stundar. Mósaík þátturinn átti að renna þar inn, en dugði skammt.  Myndlistin var flautuð af.

Birgir Andrésson heitinn átti gullkorn í viðtali í Danmörku þegar hann benti á að Ísland væri sennilega eina landið í heiminum þar sem fjallað væri um myndlist í útvarpi en ljóð og bókmenntir í sjónvarpi.

Óneitanlega stendur Ríkisútvarpið sig betur en sjónvarpið í þessum efnum. En það er á skjön við eðli miðlana.

Sjónvarpið er í raun vettvangur fyrir sjónrænt skapandi efni. þar sem listin gæti verið til sýnis inni í stofu landsmanna, ekki sem heimild um listsýningu heldur sem listaverk í sjálfu sér.  Ekki "infótainment" heldur "artentainment".


mbl.is Ört minnkandi áhorf á Gott kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsbjargarbörnin - Frægasta listasmiðja heims

Árið 1982 var listamaður nokkur, Tim Rollins að nafni,  fenginn til að sjá um sérkennslu eftir skóla í Bronx sem kallaðist "Art and Knowledge workshop" en breyttist svo  í sjálfstæða listasmiðju sem hlaut nafnið "Tim Rollins & KOS" (Kids of Survival)".

Rollins fékk til sín unglinga sem áttu erfitt uppdráttar í hefðbundnu námi og byggði hann kennsluna á lestri bókmennta og myndlistarsköpun.

timKOS   Rollins Dracula   Myndirnar hér að ofan eru af Rollins og nokkrum af meðlimum KOS.  Málverk þeirra frá 1983 eftir bók Bram Strokers, Dracula, er til hægri.

Þessi smiðja byggist á samstarfi allra sem að henni komu, bæði í vali á lesefni og úrvinnslu.

Rollins_AmerikaUmbylting varð í sköpunarferli KOS strax að ári þegar nemendurnir tóku að rífa síður úr bókum sem þau lásu og máluðu á þær myndir.

Annað mikilvægt skref í þróunarferlinu varð svo eftir að þau lásu bókina Amerika eftir Franz Kafka að einn nemandinn málaði lúður og tóku allir undir og til varð sögulegt listaverk, Amerika 1 frá árinu 1984 (sjá mynd að ofan) sem er nú að finna í mörgum listasögubókum um níunda áratuginn.

Rollins_GosiUpp frá því hafa Tim Rollins og sjálfsbjargarbörnin unnið með þessum sama hætti. Þ.e. að lesa sögulegar bókmenntir, ræða innihald þeirra og vinna síðan listaverk, hvort sem það endar í málverki eða skúlptúr eins og myndin hér til hliðar sýnir.

Verkið heitir The Adventures of Pinocchio (Ævintýri Gosa) frá 2002 og má sjá tvö augu máluð á drumbinn.

Tim Rollins & KOS eru nú að sýna í Lehman Maupin í New York City. 

Rollins_Where do we go from here 08Listaverkin á sýningunni eru abstrakt og öllu mínimalískari en áður hjá hópnum, eins og myndin hér við hlið sem heitir "Where do we go from here"  og er frá árinu 2008. Enda er þetta ekki sami hópur lengur. KOS endurnýja sig reglulega. Unglingarnir fullorðnast og fara sínar eigin leiðir.  Margir þeirra hafa farið í frekara nám s.s. listnám.

Tim Rollins & KOS er lifandi dæmi um mikilvægi þess að gefa listum veigameiri þátt í allri kennslu.


Listamaður kynntur: Edgar Heap of Birds

Hock E Aye Vi Edgar Heap of Birds er Norður Ameríkani sem fæddist í Whichita, Kansas árið 1954. Hann býr á verndarsvæði Cheyenne- Arapaho ættbálkana í Oklahoma og er prófessor við Háskólann í Oklahoma þar sem hann kennir jafnt listir og sögu innfæddra.

edgar2    wakanozhazha   Listaverk hans eru þjóðfræðileg og miðast við að varpa ljósi á arfleið indíána og gildi sem eru viðhaldin  þeirra á meðal sem/og rammpólitískar áminningar um aðgerðir gegn indíánum í Norður Ameríku og víðar, eins og verkið hér að ofan sýnir.  En verkið, Building Minnesota, var staðbundið, alls 40 skilti meðfram Mississippi, Minnesota árið 1990, og var tileinkað 40 indíánum sem voru teknir af lífi í borginni.  Ástæðan fyrir minnisvarðanum var, samkvæmt listamanninum (sem er á myndinni), að minna borgarbúa á ódæðið og að bagaðir andar hljóti hvíld.

heapveniceHeap of Birds hefur aldrei verið framlínumaður í listheiminum, þ.e. ekki út frá markaðslegu sjónarhorni eða lýðhylli. En hann nýtur virðingar meðal listamanna um heim allan og hefur sýnt á alþjóðlegum stórsýningum.

 Árið 2007 var samstarfsverk-efni hans og The Smithsonian National Museum of the American Indian sett upp í skrúðgörðum og eftir gangstíg í Feneyjum þegar tvíæringurinn stóð yfir þar í borg. Aftur tók listamaðurinn upp skiltagerð en að þessu sinni tileinkaði hann minnisvarðann 15 indíánum sem létust í Evrópusýningu Codys Wild West show.

Edgar Heap of Birds á allnokkuð af staðbundnum verkum í almenningsrými og hefur tekið þátt í sýningum í mörgum af megin söfnunum í Bandaríkjunum, s.s. MoMA, Whitney og Smithsonian.

heap1   edgar5   Myndin til vinstri er frá sýningu hans í Smithsonian safninu, Dagbók trjáa (Diary of trees) árið 2004 og hægri myndin er af útilistaverkinu Hjól (Wheel) frá árinu 2005 og er í eigu listasafnsins í Denver. Verkið byggir á sólstöðuhátíð indíána, eða hátíð tileinkaðri endurnýjun jarðar.

Hér er svo hlekkur á heimasíðu listamannsins fyrir þá sem vilja kynna sér hann betur.


Óskráður kafli.

Morgunblaðið hefur frá upphafi sinnt myndlistargagnrýni af sóma og undanfarin ár verið eini fjölmiðillinn á Íslandi þar sem hægt hefur verið að lesa umfjöllun um myndlistarsýningar. 

Eftir októberinn ógurlega fer hægt um myndlistargagnrýni og ljóst að þessi kafli íslenskrar myndlistar verður óskrásettur handa komandi kynslóðum.

Máski verða hér mikilvægustu hræringar íslenskrar myndlistar frá upphafi, endurnýjun, uppstokkun, ný gildi og hvað nú annað.  Hver veit? En þær verða ekki skrásettar í umfjöllun eða þá í opinberri gagnrýnni umræðu.

Ég hef áður sagt að það er ekki ábyrgð Morgunblaðsins að skrásetja íslenska myndlistarsögu.  Það eru einhverjir aðrir sem hafa skorast undan þeirri ábyrgð að sinna skjalavörslunni sem finna væntanlega fyrir gapinu þessa dagana og næstu mánuði.  En það hefur engu að síður verið metnaður blaðsins að fjalla um myndlist út frá gagnrýnu sjónarhorni. Þ.e. allt þar til að kreppan skall á og niðurskurðurinn tekinn í botn til að halda lífi í prentsvertunni. Sem þýðir að hægja á gagnrýninni til einhvers tíma.

En fari blaðið á hausinn þá fer myndlistargagnrýn með í för því augljóst að enginn fjölmiðill hefur áhuga á að sinna þessu.

Nýr netmiðill, smugan, er þeirra á meðal.  þar er menningardálkur sem fjallar um bækur og bíó.


mbl.is Unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu Árvakurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband