Mæli með...

gylfi gullkalfurYfirlitssýningu á verkum Gylfa Gíslasonar heitins  í Listasafni ASÍ.

Gylfi tilheyrði SÚM hópnum í upphafi en hallaðist svo aðallega til málverks og teikninga.  Var fantagóður í formrænni myndbyggingu og augljóslega stúderað klassísk gildin í þeim efnum.

Í mörgum verkanna tvinnar Gylfi saman náttúrulegum og manngerðum ímyndum. Að sumu leyti er það pólitískt en að öðru leyti snýst það um sjálfa myndgerðina og birtingu hins náttúrulega eða sjálfráða og hins manngerða eða formgerða.

Má jafnvel segja "geometrískt" og "gestural" í senn.

M.a. eru sýndar teikningar sem lista-maðurinn gerði fyrir Þjóðviljann og verð ég að játa að margt á vel við okkur í dag.

Meðfylgjandi mynd sýnir þjóðina tilbiðja gullkálf (innantómt skurðgoð beint úr biblíusögunum), en Jón Sig hefur verið felldur af stallinum.

Sýningunni lýkur í dag, sunnudag. 


Nýr Sjónauki

logoNýr Sjónauki er kominn út.  En þetta eina íslenska listtímarit (Reyndar er ósanngjarnt skilja Artímarit listfræðinema útundan, en það er samt af öðrum toga) leit dagsins ljós í þriðja sinn í dag.  En blaðið var eitthvað lengur í fæðingu en áætlað var. 

Þema þessa 3. tölublaðs er umhverfi og hagkerfi myndlistarinnar en eftir atburði síðustu vikna er viðeigandi að gefa því kreppubrag miðað við fyrstu tvö tímaritin.

Allt er nú svarthvítt, blaðið þynnra og pappírinn ódýrari. 

Blaðið komst engu að síður á þurrt og þær stöllur, Anna Júlía og Karlotta Blöndal, geta verið stoltar með það. 

Ásmundur Ásmundsson er aðalnúmer þessa tölublaðs með tilheyrandi DVD og greiningu á ræðum og list (sem er reyndar óaðskiljanlegt í hans tilfelli). Gaman að því.

Þarna er líka listtímaritalistaverk eftir Hlyn Hallsson og svo er slatti af greinum.  Ég er höfundur einnar, List mót byggingarlist.

Ég er ekki búinn að lesa allt blaðið þennan fyrsta dag. En nokkrar greinar og verð að segja eitt...  

Mér finnst alveg mega slútta þessum póstkortakveðjum frá útlöndum sem hafa verið í öllum blöðunum þremur. Það er einhver menntaskólabanall yfir þeim, eða kannski bara bloggstemmning?  Hvort sem er að þá hlýtur að vera hægt að finna eitthvað annað og meira spennandi efni í tvær blaðsíður en svona "hæ þið" póstkortakveðjur frá útlöndum.

Annars, til hamingju með nýja Sjónaukann og listamenn og listunnendur ekki gleyma að kaupa eintak.

HÉR er hlekkur á vefsíðuna.


Þetta er 90´s

prodigyÍ Af listum pistli dagsins veltir Birgir Örn Steinarsson fyrir sér skilgreiningu Á 90´s kvöldum, og kvartar yfir einsleitri tónlist á slíkum danskvöldum sem hann kallar glóstauta-sápukúluteknó. En bendir svo á að ólíkt áttunda og níunda áratugnum hafi stefnur og straumar tíunda áratugarins einkennst af fjölbreytni, þar sem allt var leyfilegt.

Í myndlistarsvelti Morgunblaðsefnis gerir maður sér gott úr því að sækja líkingar við myndlistar-umræðu í aðrar greinar og því forvitnilegt að lesa þessar yfirlýsingar Bigga í samhengi við þróun myndlistar.  En þar er sama uppi á teningnum. 

Endalok módernismans á hvörfum áttunda og níunda áratugarins marka samskonar breytingar í myndlist og popptónlist, enda snýst þetta um breytt viðhorf almennt, Samt voru mjög skýrar afmarkaðar stefnur á þeim níunda, s.s Nýja málverkið / Bad painting (sem var sama og pönkbylgjan í poppinu), Neo geo / Nýja geometrían, Ný konseptlist og Yfirtökulist.

tXGeo5Á tíunda áratugnum er annað þrep póstmódernismans. þegar allt má.

Fyrir mitt leyti markaði hljómsveitin The Podigy tímamót. Sérstaklega þegar lagið Firestarter fór í spilun. Lagið var sambland af pönk og danstónlist og skipti hún sköpun fyrir mína myndlist, varð til þess að ég fór að hugsa um samblöndun athafna- málverks og mínimalisma eða geometríu (sjá mynd t.v.), eitthvað sem í eina tíð var óhugsandi á sama myndfleti, rétt eins og pönk og dans (þá meina ég diskódans) var óhugsandi í einu sándi níunda áratugnum.


Mæli með...

kraninnSýningu Gunnars Árnasonar, Kraninnkraminn, í Startart við Laugaveg 12b.

Þetta er lítil sýning tileinkuð kolakrana er var lengi vel við Reykjavíkurhöfn.

Gunnar er einn þessara listamanna sem alltof lítið ber á, en þetta er fimmta einkasýning hans frá því að hann lauk listnámi árið 1989.

Listrænt séð sver hann sig í ætt við t.d. Guðjón Ketilsson, sem sinnir afar vönduðu handverki eða smíð innan mínimal myndmáls.


Hve marga borgarstarfsmenn þarf til að skipta um ljósaperu?

 

ljos


Bjartsýni

Half_Face_with_collar,63Mér þykir menn bjartsýnir að áætla að Diana og Acaeon eftir Titian fari á 300 milljónir punda miðað við þessa frétt í Morgunblaðinu um nýjasta uppboð Sotheby´s. En þar er greint frá því að verk eftir Philip Guston, Jeff Koons ofl. hafi farið á útsöluverði.

Titian er reyndar ekki Guston og Koons, en 300 milljónir punda er slatti meira.

Í New York Times er greint ítarlegar frá þessu uppboði Sotheby´s. Málverkið Half face with collar (sjá mynd t.v.) eftir Roy Lichtenstein sat t.d. eftir og hlaut ekkert boð. Það var metið á 15. milljónir dollara.

Sama var með 2 verk Damiens Hirst sem skömmu fyrir efnahagshrunið seldi fyrir stjarnfræðilegar upphæðir.  Nú sat hann eftir óuppboðinn.

GrisChristie´s hefur svipaða sögu að segja eftir uppboð um síðustu helgi þar sem verk eftir Picasso, Kandinsky, Monet ofl. fóru á útsöluverði.

Hins vegar fór verkið Bók, pípa og gleraugu (sjá mynd t.h.) eftir Juan Gris frá árinu 1915 á 21 milljón dollara, sem er metverð fyrir listamanninn.  En myndin var metin á 18,5 milljónir dollara.

HÉR er grein um Christie´s uppboðið í NYT.

TitianHvað varðar verk Titians Diana og Acaeon (sjá mynd t.v.)þá er 50. milljónir punda tilboð Hertogans af Sutherland til ríkisstjórnarinnar útsölutilboð miðað við matsverð.  En miðað við stöðuna í dag er óvíst að verk fari nálægt matsverði.

Málverkið sýnir augnablikið þegar stríðshetjan Acaeon kemur að gyðjunni Díönu í baði sem leiddi til þess að hann var drepinn. Ein útgáfan er að hún hafi breytt honum í stegg og sigað á hann hundum.

Þá hefur málverkið tilfinningarlegt gildi fyrir Breta sem skiptir miklu máli í þessu, enda stórbrotið verk eftir algeran snilling.


mbl.is Emin skorar á Brown
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endalok Carnegie verðlaunanna?

carnegieSpurning hvort yfirtaka Sænska ríkissjóðsins á fjárfestingabankanum Carnegie marki ekki endalok Carnegie verðlaunanna, en bankinn hefur síðan árið 1998 haldið samkeppni og farandsýningar á Norrænni málaralist og veitt völdum þátttakendum vegleg verðlaun.

Þetta eru stærstu Norrænu myndlistarverðlaunin.

HÉR er hlekkur á síðuna þeirra.


mbl.is Carnegie missir starfsleyfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pottþétt Kreppa - Jólaplatan í ár

pottþéttFékk þennan lagalista sendan á væntanlegum safndisk í hinni geysivinsælu Pottþétt diskaröð.  Diskurinn heitir „Pottþétt kreppa" og verður á uppsprengdu verði þar sem útgáfan er samræmt átak Glitnis, Kaupþings og Landsbanka.

Sérstök útgáfa verður í 2008 eintökum sem verður fáanleg á verðtryggðum myntkörfulánum og er með aukalagi. Þ.e. Memorial Remix útgáfa af laginu Lóa litla á brú í flutningi þeirra Bubba Morthens og Geirs H. Haarde á  í Austurbæ í fyrra.

Lagalisti:
1. Hjálpaðu mér upp - NýDönsk
2. It's a hard life - Queen
3. Can't walk away - Herbert Guðmundsson
4. The winner takes it all - ABBA
5. Er nauðsynlegt að skjóta þá - Bubbi Morthens
6. I need a miracle - Fragma
7. Á tjá og tundri - Sálin hans Jóns míns
8. Run to the hills - Iron Maiden
9. Hamingjan er krítarkort - GCD
10. I'm going down - Bruce Springsteen
11. Þau falla enn - Síðan skein sól
12. Ég vil fá að lifa lengur - Todmobile
13. The Thrill is gone - B.B. King
14. Sirkus Geira Smart - Spilverk þjóðanna
15. Highway to hell - AC/DC
16. Til hamingju Ísland - Silvía Nótt
17. Exodus - Bob Marley
18. A Poor mans roses - Patsy Cline
19. Vanskilablús - Megas
20. Hard Times - Bob Dylan

Aukalag. Lóa litla á brú (Memorial Remix) - Bubbi Morthens, feat. Geir H. Haarde


Avant-garde eða kitsch

800px-Sonic_Youth_live_20050707Las Alíslenskt popp: skýrslu, Arnars Eggerts Thoroddsen í Lesbók.

Skemmtileg grein / skýrsla.

Spurningin um "alvöru" listamenn og skemmtikrafta sem Arnar veltir fram í popptónlistinni er sígild í listinni.

Í myndlistinni er það spurningin um Avant-garde og kitsch eða framúrstefnulist og "listlíki" (hef alltaf átt erfitt með þessa þýðingu á kitsch en kitsch er til þess gert að höfða til múgsins).

Bandaríski gagnrýnandinn Clement Greenberg skrifaði áhugaverða ritgerð um þetta efni skömmu eftir heimsstyrjöldina síðari þar sem hann m.a. sagði óumflýjanlegt fyrir framúrstefnulistina að verða á endanum kitsch.

koons puppyMódernisminn byggðist á framúrstefnu en var að sama skapi glóbal. Póstmódernisminn tók öðruvísi á málunum og á níunda áratug síðustu aldar varð Jeff Koons ofurvinsæll í myndlistinni þegar hann skapaði list sem meðvitað höfðaði beint til almennings á forsendum framúrstefnunnar.

Donald Kuspit, gagnrýnandi, kallaði list Koons og hans líka, psuedo avant-garde (gervi framúrstefnulist) og taldi megin muninn á framúrstefnulistamanni og listamanni gervi framúrstefnunnar vera að sá síðarnefndi velti sér upp úr gildum Rómar en sá fyrrnefndi ögraði þeim.  En samkvæmt Kuspit (og reyndar mörgum fleiri) telst það háleitara markmið listamanns að ögra viðteknum gildum fremur en að velta sér upp úr þeim.

Í því sambandi þótti mér athugasemd Einars Bárðarsonar áhugaverð.  En hann stendur óneitanlega með vinsældum umfram öllu öðru.  Enda vinnur við að búa til vinsældir í takti við það sem fyrir er en ekki ögra viðteknum gildum.

Myndir: 1) Sonic Youth á tónleikum (bara besta tónleikaband ever), 2)  Blómaskúlptúrinn Puppy eftir Jeff Koons fyrir utan Rockefeller center árið 2001.


mbl.is Alíslenskt popp: skýrsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ís og aftaka

snorridrepurbrownÁ Artnet magazine er heilmikil grein eftir Ben Davis um hrun íslenska efnahagsins og er rætt við nokkra menningarvita um áhrif þessa á blómlegheit listarinnar sem hefur vakið athygli víða erlendis af því að við erum jú svo æðisleg í listinni.

Greinin nefnist Icelandic art meltdown og er sérstaklega fjallað um aðkomu Snorra Ásmundssonar að mótmælum í formi ýmiskonar gjörninga, s.s að afhenda Geir H. Haarde uppsagnarbréf Davíðs Oddssonar og aftaka hans á bangsanum Gordon á Frieze artfair.

Þá er greint frá því að Bretar hafi notað á okkur hryðjuverkalög og sitthvað fleira skemmtilegt.

HÉR er hlekkur á greinina á Artnet.


mbl.is Greint frá mótmælunum erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband