Philippe Decrauzat

Decrauzat1

 Ég verđ ađ játa ađ ef ég gćti skotist hvert sem er á morgun í einn dag eđa svo ađ ţá mundi ég fara til Vínar á sýningu Philippe Decrauzat, Secession, í Galerie Grafisches kabinett.

Decrauzat er einn sá heitasti í geometríunni um ţessar mundir. Fćddur áriđ 1974 í Sviss og hefur sótt í geometrískar hefđir ţarlendis.

 Hann ţykir samt óţekkur formalisti og gefur hefđinni stundum langt nef,  Er ţađ sem kallast "Formalist bad boy".

Ég sá sýninguna hans í Sviss institute í New York.  Hún pirrađi gagnrýnanda "Time out", Adam E. Mendelhson, allverulega sem kallađi hana "Mishmash of artistic stardegies".

Decrauzat 2

Ég var hins vegar ekki á sama máli.  Mér ţótti mikiđ til hennar koma. Sýningin er međ ţeim eftirminnilegri sem ég hef séđ á síđustu árum og hef fulla trú á ađ Secession sé alls ekki síđri. 

Ég hef fram í lok apríl til ađ skjótast.

Myndir

(Efri) Yfirlitsmynd frá sýningunni "Square" í Swiss Institute.

(Neđri) Yfirlitsmynd frá sýningunni "Secession" í Galerie Grafisches kabinett.


Á gráu svćđi

Levine

Höfundarréttur er vandasamt fyrirbćri og kann ađ hefta hinn skapandi listamann rétt eins og ađ vernda afurđir hans. Sennilega fer myndlistin inn á mun grárra svćđi í höfundarréttarmálum en ađrar listgreinar. 

Bandaríska myndlistarkonan Sherry Levine tók fyrir höfundarréttarvandamáliđ ţegar hún ljósmyndađi ljósmyndir eftir Walker Evans og sýndi undir heitinu "After Walker Evans".  Ţađ var enginn sjáanlegur munur á hennar ljósmyndum og ljósmyndum Evans. Hinsvegar var nálgun ţeirra gerólík, ţar sem ađ Evans var skrásetjari heimilda á kreppuárunum í Bandaríkjunum en Levine konseptlistamađur (Neo Conceptual art) sem vakti athygli á níunda áratugnum, einmitt fyrir ţessar ljósmyndir af ljósmyndum.

Ţetta var myndlistarstefna á níunda áratug síđustu aldar sem kallađist "Yfirtökulist" (Aproppriation art) og snérist ađ mörgu leyti um umrćđu frekar en ímyndir.

 Mike Bidlo kópérađi t.d. myndir eftir Picasso, Pollock og Warhol og kallađi ţćr "Ekki Picasso", Ekki Pollock" og "Ekki Warhol", David Diao endurgerđi myndir eftir Malevich međ smávćgilegum en oft kómískum breytingum,  og ţannig má áfram telja.

diao_malevMér ţótti Philip Taaffe og David Diao einna  skemmtilegastir  yfirtökulistamannanna en Levine gekk ţó ganga skrefiđ hvađ lengst međ ljósmyndunum og er ađ mörgu leyti áhugavert ađ sama ímyndin geti gengiđ í gegn um endurnýjun vegna annarrar nálgunar listamanns.

 Ef Levine hefđi veriđ lögsótt og skipađ ađ eyđa ljósmyndum sínum vćri listasagan ţví fátćkari.

Mig minnir ţó ađ Vignir Jóhannsson hafi lent í einhverjum lögsóknum ţegar hann reyndi viđ yfirtökulistina og málađi Lóma Jóns Stefánssonar međ viđbćttum rauđum deplum.

Myndir: (Efri) Sherry Levine, After Walker Evans, 1981. (Neđri) David Diao, Black and White, 1988.


mbl.is Höfundarréttur tekinn alvarlega
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ómetanlegur Pollock

Pollock PaintingFyrir 549 milljónir króna kaupa menn gođsögn og ţađ er ljóst ađ Jackson Pollock er hátt rísandi gođsögn enda fara verk hans upp í 900 milljónir króna, ţegar vel liggur á. 

Listamađurinn Jackson Pollock er hinsvegar ómetanlegur, enda ađ mínu mati einn af ţremur mikilvćgustu myndlistarmönnum sem hafa komiđ upp eftir síđari heimstyrjöldina (Leyfi hinum tveimur ađ fá frí í ţessum skrifum).

En hversvegna er Pollock svona mikilvćgur?  Hann var alls ekki fyrstur til ađ sletta málningu á striga. Hans Hoffman, sem Pollock sótti hjá námskeiđ, gerđi ţađ áđur og sennilega Emil Schumacher líka.

En ţeir stigu hinsvegar ekki dansinn sem Pollock steig. ţeir voru enn ađ mála myndir á trönum og slettu smá málningu ofan á form og liti.  Pollock hefur vafalaust fengiđ sitt frá Hoffman, en hann tók samt skrefiđ til fulls og lagđi strigann á gólfiđ og byggđi málverkiđ frá grunni međ ţví ađ sletta eins og óđur mađur. Og ţannig opnađi Pollock tvćr gáttir fyrir nćstu kynslóđ myndlistarmanna.

Sú fyrsta var ađ hann sprengdi málverkiđ frá trönunum og gerđi ţađ ađ athöfn (s.br. action painting).  En í kjölfar málverka Pollocks var pensillinn allt eins óţarfur og hófu listamenn ađ gera annarskonar tilraunir međ gerđ málverka, s.s. ađ stýra flćđi lita međ veltigrind, sprengja litablöđrur eđa draga litađa nakta líkama eftir striga. Í beinan legg frá Pollock koma ţá listamenn eins og  Helen Frankenthaler, Morris Louis, Yves Klein............

Hin sprengjan fólst í ţví ađ ţegar listamenn á borđ viđ Allan Kaprow og Hermann Nitcsh sáu myndir  Hans Namuths af Pollock vera ađ mála (eđa sletta) rann upp fyrir ţeim ađ athöfnin vćri áhugaverđari en afraksturinn og upp frá ţví hófu ţeir ađ fremja gjörninga eđa "happenings".  En "Happenings"er nokkurskonar ritúall sem byggir á athöfn (action) eđa framkvćmd s.br. gjörningur (ađ gera).

Pollock er ađ ţessu leyti ómetanlegur hlekkur í listasögunni. Hann opnađi málverkiđ upp á gátt en gaf um leiđ listamönnum fćri á ađ hafna ţví gersamlega og gera athöfnina eina og sér ađ listaverki. 


mbl.is Verk eftir Pollock selt á 8 milljónir dala
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Skrípa abstrakt

sitting01[1]Er ađ lesa bók um "Comic abstractions" sem var gefin út í tilefni af samnefndri sýningu í MoMA í fyrra sem Raxana Marcoci, sýningarstjóri gerđi úttekt á.

Ţetta er forvitnileg bók međ skírskotanir í teiknimyndir og hvernig sá heimur hefur haft áhrif á listina. Og í ţessu tilfelli er ţađ abstraktlistin.

Ţarna eru listamenn á borđ viđ Polly Apfelbaum, Inka Essenhigh, Arturo Herrera, Michel Majerus og Rivane Neuenschwander. Ég verđ ađ játa ađ mín myndlist mundi eflaust flokkast innan ţessarar skilgreiningar.

Ţađ er dálítiđ skrítiđ ađ sýningarstjórinn taki ţetta ekki lengra aftur í tíma í bókinni ţví hún áćtlar ađ ţetta sé alger nýjung, ađ poppkúltúrinn birtist fyrst í abstraktlistinni á síđastliđnum 10 árum eđa svo.

DunhamMér ţykir hún sniđganga sćnska listamanninn Öyvind Fahlström, sem hafđi algera sérstöđu í popplistinni á sínum tíma, m.a. fyrir ţćr sakir ađ mála abstrakt, eđa í ţađ minnsta semi-abstrakt eins og margir listamennirnir sem Marcoci telur innan skrípa-abstraktsins.  Fahlström er einn af mínum uppáhalds Norrćnu listamönnum. Og er tvímćlalaust vanmetinn á alţjóđlega vísu, ekki síst ţegar hann er sniđgenginn í ţessu samhengi.

Einnig mundi ég segja bandaríkjamanninn Carroll Dunham eiga ţarna eitthvađ inni, en Dunham var ađ fást viđ sjálfráđa abstraktsjón sem var samofin teiknimyndakúltúrnum fyrir um 25 árum.

Svo má vel hugsa upp fleiri listamenn í ţennan pakka.

Birti af ţví tilefni mynd af verki eftir Fahlström... Sitting frá árinu 1962 (uppi) og mynd af verki eftir Dunham...Age of rectangles frá árinu 1983 (niđri).


Ađ mála Monu Lisu

Í tilefni greinar sem ég skrifađi fyrir Lesbók í dag um Monu Lisu, fćđingu og dauđa hennar, birti ég hér kennsluefni í margmiđlunarformi.

Hvernig á ađ mála Monu Lisu međ Microsoft málningu.

En mér gengur ómögulega ađ festa youTube beint á bloggiđ ţannig ađ ég lćt ţennan hlekk duga

http://www.youtube.com/watch?v=uk2sPl_Z7ZU


Frelsi frá forminu

Gondry DeitchHef veriđ í smá viđrćđum á bloggi Yddarans varđandi Kvikmyndir eftir handriti Charlie Kaufman. Michel Gondry kom ţá til tals og langađi mig ţess vegna til ađ minnast lítillega á myndlist og kvikmyndir, en Gondry er líka installasjón-listamađur og sýnir einmitt um ţessar mundir í Deitch projects í New York sýningu sem heitir Be kind rewind (sjá yfirlitsmynd af sýningu). Ţetta er sami titill og kvikmynd hans sem er ţessa dagana í bíói, en hann sýndi einmitt áđur í Deitch projects áriđ 2006 installasjón sem hét Science of sleep.

Ţađ er áhugavert ađ spá í hvađa kvikmyndagerđarmenn eru einnig í myndlist og hver munurinn er á kvikmyndaverkum ţeirra og annarra. Má t.d. nefna David Lynch, Peter Greenway og Derek Jarman.  Sá síđastnefndi er fyrir mitt leyti brautryđjandi í ţví ađ fleyta ţessi mörk kvikmyndar og myndlistar, eins og algengt er í dag, og viss undanfari fyrir t.d.  Matthew Barney. Kvikmyndin The Garden" er gott dćmi um ţađ.

Ţessir menn styđjast umfram allt viđ hiđ sjónrćna og eru tormeltir, sérstaklega í samanburđi viđ kvikmyndasamsteypumyndir frá Bandaríkjunum.

Í sinni síđustu mynd, Inland Empire, ţótti mér David Lynch fćra sig lengra inn á ţetta sviđ tilraunakenndar og frelsis frá forminu.


Vangaveltur vegna gjörnings

STojlÉg hef veriđ samvinnu viđ Króatískan sýningarstjóra, Radmilu-Ivu Jankovic ađ nafni, í ţví ađ koma á laggirnar sýningu á Króatískri samtímalist  í Gallery 100° (Orkuveitu Reykjavíkur) á nćstu Listahátíđ í Reykjavík.

Megin ástćđan fyrir ţví ađ ég lagđi út í ţessa vinnu er ađ ég sat fyrirlestur hjá Radmilu í New York ţar sem hún kynnti ýmiss verkefni Króatískra listamanna, en hún starfar sem sýningarstjóri hjá Samtímalistasafninu í Zagreb og sérhćfir sig í list í almenningsrými.

Ég heillađist ađ hráleika í list Króatanna en ađ sama skapi sá ég sögulega tengingu viđ Íslenska myndlist, sterkur "konseptúal" grunnur og afstrakt hefđ.  Auk ţess hafa ţau búiđ viđ einangrun eins og viđ en sitja nú undir hnattvćđingu međ opna arma, líkt og viđ.

Ég fékk sendar myndir frá Radmilu í fyrradag af gjörningi Slavens Tolj í New York, en Tolj er sennilega ţekktasti samtímalistamađur Króata, video og gjörningalistamađur, og verđur á međal sýnenda á listahátíđinni í vor.

Gjörningurinn er í stuttu máli ţannig ađ listamađurinn situr viđ borđ međ eina vodka og eina Jack Daniels (Vín-andi Austur Evrópu og Bandaríkjanna) sem hann drekkur til skiptis. Eftir dágóđa stund má sjá ţjáningu og ógeđ í andliti hans en hann heldur ótrauđur áfram ţar til hann endar í súrefnisgrímu á spítala.

Ţađ er eitthvađ svo heillandi hrátt, óvćgiđ og "primitíft" í ţessu ađ ég fór ađ hugsa gjörninginn í íslensku samhengi og slóg mig ađ "primitismi" er gersamlega dottinn út úr íslenskri myndlist. Í besta falli sjáum viđ Gabríelu Friđriksdóttur sinna ţessu á Listasafni íslands en ţađ er á einhverju teiknimyndastigi og mjög "hannađ".  Íslenskir myndlistarmenn eru einfaldlega orđnir "siđprúđir", jafnvel "borgaralegir".

Sinisa Labrovic Licking heels, 2007Viđ eigum vissulega "primitíf" tilţrif í listasögunni okkar, allt frá Svavari Guđnasyni til Ólafs Lárussonar. En teiknimyndakúltúrinn, sjónvarps og popp -menning hefur tekiđ yfir. Auk ţess erum viđ ofurseld kaldhćđni.  Ţađ er í sjálfu sér ekkert rangt í ţessu, ţannig er ţetta bara. En forvitnilegt ađ spá í "hvers vegna?"

Ţess má svo geta ađ Slaven Tolj mun fremja gjörning í orkuveitunni ţegar Króatarnir opna í maí nćstkomandi.  Sem/og kollegi hans, Sinisa Labrovic, en hann er ekki síđur hrár og óvćginn í sínum gjörningum.  Birti hér mynd af gjörningi hans "Ađ sleikja hćla", ţar sem gestum á sýningu bauđst ađ setjast og láta listamanninn sleikja á ţeim fćturna.


Fyrsta tilnefning til nćstu Sjónlistaverđlauna

birgirDrattađist á sýningarölt eftir tveggja vikna flensu (tvćr í röđ, held ég) og skođađi m.a. sýningu Birgis S. Birgissonar, Auđmýkt,  í Gallery Turpentine.

Ţetta eru viđkunnanlegar kitsch styttur málađar ljóshćrđar og síđan ljósmyndađar frá öllum hliđum. Eitthvađ undurfagurt gerist viđ ţennan einfalda gjörning og mađur er minntur á biliđ á milli hlutar og myndar, listaverks og áhorfenda, listaverks og rýmis, áhorfanda og rýmis. 

Er á ţví ađ eftir ţessa sýningu og Ljóshćrđar fegurđardrottningar á Kjarvalsstöđum hafi Birgir áunniđ sér tilnefningu til nćstu Sjónlistaverđlauna.


Tilraunasemi, gróska og uppvöxtur

peningaskulpturŢetta er sćmilegasta úttekt hjá Einari Fal í Lesbókinni í ljósi einkavćđingar og nú "kreppu". Fínt ađ drepa á ţessu ástandi. Og finn ég mig tilneyddan ađ leggja orđ í belg.

Aukiđ fé úr einkageira til myndlistarstofnana léttir vissulega á hjá stofnunum og gefur ţeim fćri á ađ leggja kostnađ í sýningar og greiđa kannski listamönnum fyrir vinnuna, en oft er ţađ ţannig ađ allir fá greitt sem koma ađ uppsetningu sýningar nema myndlistarmenninrir sjálfir. Hins vegar er ţađ áhyggjuefni ţegar liststofnanir treysta fjárstyrk fyrirtćkja, ţví ţađ kann ađ leiđa til afturhaldsemi  í sýningum til ađ styggja ekki velgjörđamenn.

Einnig sćkja liststofnanir sér fé međ ţví ađ leigja út ađstöđu fyrir fundi og veislur innan húsakynna sinna. Og ţykir mér ţađ heldur báglegt og setur jafnvel listinni skorđur.  Tala ekki um listamenn sem vilja fá frjálsar hendur međ rými.

Einar talar líka um starfslaun listamanna, en ţau eru stuđningur viđ framvindu listar. Ef bara ţeir söluhćstu eiga ađ lifa af ađ ţá fćri listin fljótt niđuráviđ.  Er mér minnisstćtt samtal sem ég átti fyrir nokkrum árum viđ menn í hugbúnađargeiranum sem töluđu um mikilvćgi ţess ađ ríkiđ styrkti rannsóknir á hugbúnađi ţannig ađ Ísland yrđi samkeppnishćft á ţví sviđi.  Ţegar taliđ snérist ađ myndlist breyttist viđhorfiđ og einn spurđi mig "Hversvegna mála ekki fleiri listamenn eins og Tolli, hann selur svo vel?"

Starfslaunin eru rannsóknar og verkefnastyrkir. Og ţar sem ég ber fyrst og fremst hagsmuni myndlistar fyrir brjósti ađ ţá tel ég brýnt ađ lagfćra misrćmi í úthlutun á milli listgreina, en ţađ er óréttlćtanlegt ađ úr 144 umsóknum til launasjóđs rithöfunda ţá hljóta 74 laun (frá 3 mán - 3 ára launa) en af 165 umsóknum til launasjóđs myndlistarmanna eru 32 sem hljóta laun (frá ferđastyrkjum til 2 ára launa).

Ţađ er vaninn á BÍL fundum (Bandalag Íslenskra Listamanna) ţegar ţetta misrćmi kemur til tals ađ rithöfundar séu ţessu sammála en álykta ađ BÍL ćtti ađ berjast fyrir hćkkun hjá öllum en ekki bara myndlistarmönnum. SÍM (Samband Íslenskra Myndlistarmanna) hefur kyngt ţessu, og er ég ekki saklaus í ţeim efnum ţar sem ég sat í stjórn SÍM í einni slíkri umrćđu hjá BÍL. En Menntamálaráđuneytiđ hefur fyrir löngu ákveđiđ ađ fjölga ekki launamánuđum og tvíeflist í ţeirri afstöđu í "kreppuástandi".

Nú er ţví tími til kominn fyrir myndlistarmenn ađ berjast fyrir eigin hagsmunum og krefjist ţess ađ ef Menntamálaráđuneytiđ ćtlar ekki ađ fjölga mánuđum, og ţá sérstaklega til myndlistar, ađ Launasjóđur myndlistarmanna fái hluta af ţeim mánuđum sem áćtlađir eru til rithöfunda (Ţessi tillaga vćri sem olía á eld á BÍL fundi). Slíkt vćri einfaldlega leiđrétting á misrćmi, enda löngu úrelt viđhorf ađ Ísland sé bókmenntaţjóđ. Í dag er allt ađ gerast í myndlistinni, tilraunasemi, gróska og uppvöxtur.


mbl.is Menning sćkir aukiđ fé í einkageirann
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Nakin neđanjarđar

VenusESÍ eina tíđ var orđiđ "klám" notađ sem andheiti lista. Ađ klćmast á einhverju var ţá ţvert gegn fagurfrćđilegu markmiđi listarinnar.

Í Grikklandi til forna ćfđu íţróttamenn naktir fyrir augum almennings. Ástćđan var ekki til ađ áhorfendur gćtu fengiđ órum sínum svalađ á áhorfendapöllum heldur var stćltur og nakinn mannslíkami vísir ađ fullkomnun. 

Á endurreisnartímum leituđu listamenn aftur til hinna Grísku gilda, og ţótt óneitanlega sé miđaldarbragur á ímyndum Lucas Cranachs, líkaminn sléttur og útlimir smágerđir, ţá tilheyrir hann endurreisnartímanum. 

Venus er ástar og frjósemisgyđja Rómverja, sú hin sama og Grikkir kölluđu Afródítu.  Venusarmynd Cranachs er ţví gyđjuímynd og yfir henni býr fagurfrćđileg dulúđ sem m.a. leynist í fáguđu handverki listamannsins. Líkaminn er í "contrapposto" (S-laga stelling) eins og tíđkst međ venusarmyndir allt aftur til Grikkja og í nektinni fellst upphafning í líkingu viđ nekt Grikkjanna.

Međ klámvćđingu nútímans hefur dulúđ nektarinnar veriđ afhjúpuđ og fólk er ţar af leiđandi gjarnt á ađ sjá klám út úr allri nekt. Ţannig sjá talsmenn neđanjarđarlestakerfisins í London greinilega mynd Cranachs og segja viđmiđunarreglur hafa veriđ brotnar, "ađ ekki megi sýna naktar persónur í auglýsingum". En nekt er ekki endilega ósiđleg og síst í 500 ára gömlu málverki sem sýnir ásýnd guđlegrar veru úr fornum trúarbrögđum. Hér er hreinlega veriđ ađ banna háleita fagurfrćđi af ótta viđ mistúlkun eđa hugsanaglćpi (Big brother is watching you).

Rétt er ţó ađ geta ţess ađ myndin sem birtist međ fréttinni í Morgunblađinu er af annarri Venusarmynd Cranachs. Hann gerđi nokkrar.  Ţćr eru ţó aldrei kviknaktar. Umrćdd Venus er međ hálsfesti og gegnsćja hulu. En sú sem birtist í blađinu er einnig međ hatt.


mbl.is Mynd af nakinni Venus bönnuđ í lestum London
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband